Leita leiða til að ferja vinnandi hendur Svavar Hávarðsson skrifar 17. október 2015 07:00 Horft er til langrar framtíðar með bættar samgöngur enda líkur á að starfsmannafjöldi bara í Leifsstöð eigi eftir að margfaldast á næstu árum. vísir/gva
Isavia, í samstarfi við nokkur fyrirtæki tengd starfsemi á Keflavíkurflugvelli, vinnur að gagnasöfnun um þarfir þeirra, og fyrirtækja á Suðurnesjum almennt, varðandi almenningssamgöngur á svæðinu. Rót vinnunnar liggur í snarbatnandi atvinnuástandi á Suðurnesjum og sívaxandi fjölda fólks sem sækir vinnu á Suðurnesin. Sigurður Ólafsson, framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Isavia, segir, þegar litið er til baka um nokkur ár, það gleðilegt að fyrirtæki á svæðinu þurfi að leita út fyrir Suðurnesin að starfskröftum. „Við byrjuðum í sumar, með samstarfsfyrirtækjum okkar á flugvallarsvæðinu, að ræða hvernig þau leystu sín mál. Það kom í ljós að um 200 manns sem eru að vinna á flugvallarsvæðinu eru búsettir í Reykjavík. Drjúgur hluti þess hóps er vaktavinnufólk sem byrjar sinn vinnudag á mismunandi tímum sólarhringsins,“ segir Sigurður og bætir við að almenningssamgöngurnar svari ekki þörfum þessa hóps að fullu, t.d. um helgar.Sigurður Ragnarsson„Við ræddum hvernig þetta verður best leyst, og ein leiðin væri að Isavia og þessi fyrirtæki færu saman í rekstur á samgöngukerfi, þó að sú vinna sé ekki komin langt. Það er erfitt að koma þessu öllu heim og saman fyrir mörg fyrirtæki. Fókusinn fór því fljótt á annaðhvort að gera samning við aðila sem gæti keyrt okkur á milli eða að skoða hvað Strætó og sveitarfélögin á Suðurnesjum væru tilbúin að gera. Við höfum fundað með Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og fengum góðar undirtektir og vinnum nú að því að taka saman frekari gögn.“ Ein af þeim leiðum sem ræddar hafa verið er að setja upp hraðleið sem fer beint upp á Keflavíkurflugvöll einhverja tíma dagsins, enda hefur Isavia, og önnur fyrirtæki á svæðinu, fundið fyrir mjög batnandi atvinnuástandi á Suðurnesjum og hækkandi hlutfalli umsækjenda um störf sem búa í Reykjavík. Nýjar tölur Vinnumálastofnunar sýna að atvinnuleysi á landsvísu í september stóð í 2,4%. Á Suðurnesjum er það enn þá hæst yfir landið en er þó aðeins 2,9%. Ber þá að líta til þess að atvinnuleysistölur í sama mánuði 2009 og 2010 voru 12,1% og 11,3%. Tala sama mánaðar í fyrra var 4,5%. Viðmælendur Fréttablaðsins sem reka fyrirtæki utan flugvallarsvæðisins upplifa stöðuna með sama hætti. Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá verktakafyrirtækinu ÍAV, segir hugmynd um að virkja almenningssamgöngur allrar athygli verðar. „Við erum með mikið af verkefnum á Suðurnesjum og þar hefur verið mjög erfitt að fá mannskap til starfa. Við höfum hingað til ekki verið að nýta okkur almenningssamgöngur á milli Suðurnesja og Reykjavíkur en myndum vissulega skoða þær ef ferðum myndi fjölga, sérstaklega á þeim tímum þar sem fólk fer úr og í vinnu,“ segir Sigurður.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira