„Þetta er bara algjört prump í kallinum“ Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 17. október 2015 13:36
Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar sakar formann utanríkismálanefndar um rakinn dónaskap gagnvart forsetanum. Nefndin hélt aukafund um að leggja niður Þróunarsamvinnustofnun á sama tíma og forsetinn hélt ræðu á ráðstefnunni Artic Circle. Varaformaður utanríkismálanefndar segir þennan málatilbúnað algjört prump. Meirihluta utanríkismálanefndar undir nýrri forystu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur lá svo rosalega á að slátra Þróunarsamvinnustofnun að boðað var með hraði til sérstaks aukafundar til að ganga frá henni – á nákvæmlega sama tíma og forsetinn flutti ræðu sína á ráðstefnunni Artic Circle. Þetta segir Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar sem sakar Hönnu Birnu um sýna forsetanum óvirðingu. „Hann er bara að búa til eitthvað til þess að villa mönnum sýn og þetta er bara algjört prump í kallinum sem að ég tek ekkert mark á,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, varaformaður utanríkismálanefndar. „Hann er náttúrulega algjörlega að búa til eitthvað til þess að draga og tefja og blekkja eins og hann gerir stundum því eins og með þetta mál þá er það lagt fram að nýju frá síðasta þingi óbreytt. Umsagnir bárust að nýju óbreyttar líka þannig að það er ekkert nýtt að koma fram í þessu máli. Hún segir að boðað hafi verið til aukafundarins klukkan hálf fimm á fimmtudegi en hann hafi verið haldinn til að bregðast við óskum nefndarmanna um fleiri gesti til að ræða málið. „Sjö mínútur í átta að morgni föstudags sendir Össur Skarphéðinsson beini um að fundi sé frestað til klukkan tvö. Ég sé þau skilaboð klukkan hálf níu og gestir nefndarinnar áttu að mæta á fund nefndarinnar klukkan níu þannig að ég taldi algjörlega ógerlegt að fresta fundinum þar sem að ég vissi að gestirnir gætu bara hitt nefndina á milli klukkan níu og korter fyrir tíu. Þannig að sjálfsögðu hafnaði ég þessari beiðni Össurar Skarphéðinssonar sem hafði dágóðan tíma frá eftirmiðdegi á fimmtudegi til að biðja um frest sem hann gerði ekki.“ Silja Dögg segir að þrátt fyrir að Össur Skarphéðinsson láti öllum illum látum á blogginu og hamist gegn málinu með blekkingum og sé hún æ sannfærðari um að það sé rétt að flytja málaflokkinn í utanríkisráðuneytið.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira