Einn á slysadeild eftir að eldur kviknaði í Írabakka Gissur Sigurðsson skrifar 1. október 2015 06:44 Bjarga þurfti fjórtán manns af svölum blokkarinnar.
Einn var fluttur á slysadeild og fjórtán manns var hjálpað niður af svölum eftir að eldur kviknaði á geymslugangi í kjallara undir þriggja hæða fjölbýlishúsi við Írabakka í Breiðholti á öðrum tímanum í nótt. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út og þegar fyrstu liðsmennirnir komu á vettvang lagði þykkan svartan reyk upp úr kjallaranum og upp allan stigaganginn. Reykkafarar fóru þegar niður í kjallarann og réðust gegn eldinum, en aðrir liðsmenn reistu stiga utan á húsinu og ferjuðu fólk niður af svölum og gekk það áfallalaust. Strætisvagn var kallaður á vettvang þar sem fólkið komst í skjól og naut aðstoðar fólks frá rauða krossinum . Einhver reykur barst inn í næsta stigagang, en íbúar þar þurftu ekki að yfirgefa híbýli sín. Rafmagn fór af þessum tveimur stigagöngum. Slökkvistarfið sjálft gekk vel en það var ekki fyrr en á fjórða tímanum sem slökkviliðsmenn höfðu lokið við að reykræsta íbúðirnar sex, sem eru í stigaganginum. Íbúarnir þurftu að gista annars staðar í nótt. Ljóst er að mikið tjón hefur orðið, einkum af völdum sóts, og er mikið hreinsunarstarf fram undan . Eldsupptök eru ókunn, en samkvæmt heimildum fréttastofu er ekki útilokað að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum. Lögregla rannsakar nú málið.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira