Sterkar vísbendingar um íkveikju í Írabakka Gissur Sigurðsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 1. október 2015 12:15 Stigagangurinn lítur illa út eftir atburði næturinnar. Vísir/Þórhildur
Einn var fluttur á slysadeild vegna reykeitrunar og þrettán til viðbótar þurfti að bjarga niður af svölum þegar eldur kom upp í þriggja hæða fjölbýlishúsi við Írabakka í Breiðholti í nótt. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út á þriðja tímanum í nótt. Þegar fyrstu liðsmenn mættu á vettvang lagði þykkan svartan reyk upp úr kjallaranum og upp allan stigaganginn. Reykkafarar fóru þegar niður í kjallarann og réðust gegn eldinum sem logaði glatt. Aðrir liðsmenn reystu stiga utan á húsinu og ferjuðu fólk niður af svölum. Gekk það áfallalaust fyrir sig. Sex íbúðir eru í húsinu en búið er í fimm þeirra. Strætisvagn var kallaður á vettvang sem mætti á svæðið innan stundar. Naut fólk skjóls þar og aðstoðar frá Rauða Krossinum.Mikið hreinsunarstarf er framundan.Vísir/ÞórhildurÓgnaði lífi og limum fólks Einhver reykur barst inn í næsta stigagang, en íbúar þar þurftu ekki að yfirgefa híbýli sín. Rafmagn fór af báðum stigagöngunum. Slökkvistarfið sjálft gekk vel en það var ekki fyrr en á fjórða tímanum sem slökkviliðsmenn höðu lokið við að reykræsta íbúðirnar sex. Íbúarnir þurftu að gista annarsstaðar í nótt. Ljóst er að mikið tjón hefur orðið, einkum af völdum sóts, og er mikið hreinsunarstarf framundan. Eldsupptök eru ókunn en eldurinn virðist hafa kviknað á bak við læsta hurð í kjallara. Að sögn Heimis Ríkharðssonar í rannsóknadeild lögreglunnar eru sterkar vísbendingar um íkveikju en enginn sérstakur liggur þó enn undir grun. Hann segir málið litið mjög alvarlegum augum enda hafi viðkomandi ógnað lífi og limum fólksins í húsinu.Hér neðst má svo sjá myndir sem Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, tók nú í hádeginu.
Tengdar fréttir Einn á slysadeild eftir að eldur kviknaði í Írabakka Bjarga þurfti fjórtán manns af svölum blokkarinnar. 1. október 2015 06:44 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Sjá meira
Einn á slysadeild eftir að eldur kviknaði í Írabakka Bjarga þurfti fjórtán manns af svölum blokkarinnar. 1. október 2015 06:44