Seðlabankinn vill friðhelgi starfsmanna gegn lögsóknum ingvar haraldsson skrifar 1. október 2015 14:48 Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Seðlabanki íslands vill að starfsmenn þeirra verði tryggð ákveðin friðhelgi gegn lögsóknum í starfi þeirra fyrir bankann. Þetta kemur fram í lokaskýrslu nefndar um endurskoðun laga um Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn hafi bent á að í neyðarlögunum svokölluðu hafi verið kveðið á um að forstjóri, starfsmenn eða stjórnarmenn Fjármálaeftirlitsins væru ekki skaðabótaskyldir vegna þeirra sérstöku ráðstafana sem heimilar voru í lögunum. Í skýrslunni sem hagfræðiprófessorarnir Friðrik Már Baldursson og Þráinn Eggertsson skrifuðu kemur fram að almennt sé litið svo á að mikið þurfi að koma til svo starfsmenn Seðlabankans beri persónulega ábyrgð á störfum sínum. Þeir þurfi að fara verulega út fyrir starfssvið sitt eða valdi tjóni af stórfelldu gáleysi til að bera ábyrgð á því persónulega. Dæmi séu um að stjórnendur Seðlabankans hafi veitt tilgreindum starfsmönnum vernd í formi yfirlýsinga um skaðleysi. Þá hafi Ríkisendurskoðun talið að bankaráði Seðlabankans sé heimilt að greiða kostnað af málaferlum seðlabankastjóra við bankann. Því virðist vera fordæmi fyrir því að Seðlabankinn veiti þeim sem vinna fyrir bankann skaðleysi án þess að lögum verði breytt. Nefndin leggur engu síður til að ábendingar bankans verði teknar til skoðunar í fjármálaráðuneytinu.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira