Ægir Már nýr forstjóri Advania Sæunn Gísladóttir skrifar 5. október 2015 16:45 Ægir Már Þórisson, nýr forstjóri Advania. Vísir/Advania
Ægir Már Þórisson hefur tekið við starfi forstjóra Advania á Íslandi af Gesti G. Gestssyni sem mun helga sig starfi forstjóra Advania Norden, sem er móðurfélag Advania á Norðurlöndunum. Fram kemur í tilkynningu að með breytingunum sé markmiðið að efla starfsemi Advania bæði á Norðurlöndunum og á Íslandi enn frekar. Bfundi með starfsmönnum í morgun. Á undanförnum árum hafa umsvif Advania á Norðurlöndunum aukist verulega, en utan Íslands er fyrirtækið með starfsemi í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Stefna eigenda Advania er að efla starfsemina á Norðurlöndunum enn frekar. Advania veitir opinberum aðilum, fyrirtækjum og einstaklingum víðtæka upplýsingatækniþjónustu og starfa um eitt þúsund manns hjá fyrirtækinu, þar af tæplega sex hundruð á Íslandi. Ægir Már hóf störf hjá Advania árið 2011 og hefur undanfarin tvö ár verið framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála. Ægir Már er vinnusálfræðingur að mennt og var ráðgjafi, mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri hjá Capacent áður en hann kom til starfa hjá Advania. „Það eru spennandi tímar framundan hjá Advania á Íslandi og mikil tækifæri sem blasa við. Með þessari breytingu ætlum við að skerpa áherslur okkar á innanlandsmarkaði. Okkar meginmarkmið mun sem fyrr snúast um að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu á sviði upplýsingatækni og hjálpa þeim að nýta upplýsingatæknina á snjallan hátt til að ná enn betri árangri,“ segir Ægir Már í tilkynningunni. „Við höfum lagt mikla áherslu á að efla starfsemi Advania á Norðurlöndum á undanförnum árum og hef ég verið í því verkefni samhliða því að stýra starfseminni á Íslandi. Núna teljum við að sé rétti tímapunkturinn að ég einbeiti mér að okkar norrænu starfsemi af fullum krafti. Advania á Íslandi er sá grunnur sem við byggjum á og því skiptir miklu fyrir okkur að fá jafn öflugan mann og Ægi Má til þess að halda um taumana hér heima og efla starfsemina enn frekar,“ segir Gestur G. Gestsson.
Mest lesið Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira