20 milljón máltíðir úr íslenskum mat snæddar daglega Sæunn Gísladóttir skrifar 30. september 2015 07:00 Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu og Guðný Káradóttir, forstöðumaður matvælasviðs Íslandsstofu, fluttu ávarp á fundinum. Vísir/GVA
Mikilvægt er að auka samstarf meðal matvælafyrirtækja sem stunda útflutning á íslenskum vörum. „Markmið er alltaf það sama, að auka verðmæti útflutnings og vera með gæðavöru,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, á fundi Íslandsstofu á mánudaginn. Á fundinum var kynnt könnun sem Íslandsstofa lét gera á stöðu útflutnings matvæla, helstu útflutningsmarkaði og helstu hindranir og áskoranir í útflutningi. Meðal þess sem kom fram var að almennt ríki bjartsýni meðal fyrirtækja sem stunda eða hafa áhuga á að stunda útflutning á matvælum. Gæði, ímynd landsins, hreinleiki og ferskleiki eru styrkleiki íslenskrar matvælaframleiðslu. Fjarlægð frá mörkuðum, hár sendingakostnaður og skortur á langtímamarkmiðum og skýrri sýn eru hins vegar takmarkanir þess. Tuttugu milljón máltíðir úr íslenskum mat eru sneyddar daglega. „Við erum að framleiða um þrjátíu sinnum fleiri matareiningar en við neytum hérna heima. Ég ætla að staðhæfa að þetta sé heimsmet. Engin þjóð í heiminum framleiði meiri matvæli miðað við neyslu. Við höfum fulla ástæðu til að skilgreina okkur sem matvælaframleiðendur,” sagði Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu í opnunarávarpi sínu. Árið 2014 var útflutningar á matvælum frá Íslandi 44% af heildarverðmæti vöruútflutnings. Rannsóknarvinna hófst í mars. Guðný Káradóttir, forstöðumaður matvælasviðs Íslandsstofu, og Bryndís Eiríksdóttir verkefnisstjóri kynntu niðurstöður könnunar og viðhorf aðila í matvælageiranum. Sjávarútvegurinn er lang rótgrónasta útflutningsgreinin og með langstærstan hlut útflutningsverðmæta, eða 93% árið 2014. „Það er samt vöxtur í öðrum matvælum og hefur þeim fjölgað úr 3% árið 2007 í 7% árið 2014,” sagði Bryndís í kynningu sinni. Hún benti á að ein stærsta hindrunin í útflutningi væri skortur á samvinnu og samstöðuleysis. Framleiðslugetan er einnig mun meiri en við nýtum okkur. Ræktanlegt land er talið um 600 þúsund hektarar, en nýting í dag er um 116 þúsund hektarar. Einnig er hægt að auka laxeldi til muna. Framleiðslugetan er þó takmörkuð að því leyti að það er ekki hægt að „brauðfæða allan heiminn.“ Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, sagði það mikilvægt að marka einbeitta stefnu í útflutningi. „Við getum ekki verið á öllum mörkuðum, það er hætt á að fólk sé að gera of lítið of dreift,“ sagði Sindri. Það var samhljóma álit viðmælenda í kortlagningunni að það er mikilvægt að tengja vörurnar við upprunalandið Ísland. Með samvinnu og samstöðu í markaðssetningu matvæla má ná meiri árangri.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Spá aukningu á verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukningu á verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Sjá meira