Spánverjar og Bretar sækja um stöður geislafræðinga Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 23. september 2015 18:43 Tólf af fimmtán umsóknum sem bárust um stöður geislafræðinga á Landspítalanum eru frá Spánverjum og Bretum. vísir/vilhelm
Tólf af fimmtán umsóknum sem bárust um stöður geislafræðinga á Landspítalanum eru frá Spánverjum og Bretum. Deildarstjóri röntgengdeildar segir útlit fyrir að einhverjir þeirra komi til starfa á spítalanum á næstu vikum. Tuttugu og fimm geislafræðingar sögðu upp störfum á Landspítalanum í sumar vegna kjaradeilu þeirra og ríkIsins. Hluti þeirra dró uppsagnir sínar til baka en uppsagnir 17 geislafræðinga, eða um fjórðungs þeirraa geislafræðinga sem hafa starfað á spítalanum, stóðu og komu til framkvæmda 1. september. Rúmar þrjár vikur eru síðan geislafræðingarnir 17 hættu á Landspítalanum og hefur brotthvarf þeirra haft töluverð áhrif á starfsemi spítalans. „Þetta er búið að vera erfitt og við erum búin að vera undirmönnuð en bara með jákvæðu starfsfólki og með samheldni þá hefur þetta gengið en að sjálfsögðu hefur þetta verið erfitt,“ segir Díana Óskarsdóttir deildarstjóri á röntgendeild Landspítalans. Hún segir starfsemi röntgendeildarinnar hafa verið skerta þessar þrjár vikur og biðlista eftir því að komast í rannsóknir hafa lengst. „Það náttúrulega gengur allt hægar hérna hjá okkur og fólk þarf að bíða lengur eftir því að fá tíma,“ segir Díana Til að deildin sé fullmönnuð þarf að ráða í fjórtán stöður geislafræðinga. Auglýst var eftir geislafræðingum og rann umsóknarfrestur út á miðnætti á mánudaginn. „Við fengum 15 umsóknir áður en umsóknarfrestur rann út en síðan hafa einhverjar umsóknir verið að berast eftir það,“ segir Díana. Nokkrir þeirra geislafræðinga sem sögðu upp á spítalanum í sumar eru á meðal umsækjanda. Þá hafa fleiri af þeim haft samband eftir að umsóknarfresturinn rann út. Díana segir að ákveðið hafi verið að auglýsa aftur svo þeir geti sótt um. Stærstur hluti þeirra umsókna sem þegar hefur borist eru hins vegar frá Bretum og Spánverjum og er útlit fyrir að einhverjir þeirra verði ráðnir til starfa á spítalanum. „Við munum alveg eins gera það ef okkur líst svo á. Við eigum eftir að fara í gegnum þessar umsóknir og taka viðtal við alla sem sækja um. Við erum með um tólf umsóknir, erlendar umsóknir. Við erum að fá umsóknir frá Spáni og frá Bretlandi,“ segir Díana. Díana vonast til að hægt verði að ganga frá ráðningum á næstu dögum og vikum. „Ég er að vonast til þess að í október verðum við komin með fulla starfsemi á deildina aftur. Það er mín von og trú,“ segir Díana Óskarsdóttir.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Sjá meira