Matur

Ítölsk eggjakaka með klettasalati og nýrifnum Parmesan

Eva Laufey Kjaran skrifar
Berið eggjakökuna fram með klettasalati og stráið gjarnan rifnum Parmesan osti yfir.
Berið eggjakökuna fram með klettasalati og stráið gjarnan rifnum Parmesan osti yfir. Vísir

Um helgar þegar við höfum meiri tíma þá er upplagt að skella í eina ljúffenga eggjaköku með blaðlauk, kartöflum og grilluðum paprikum. Fyrirhafnarlítill og einstaklega bragðgóður morgunverður. 

Ítölsk eggjakaka með klettasalati og nýrifnum Parmesan

Bökuð á pönnu sem má fara inn í ofn, stærðin á pönnunni er 26cm 

  • Olía + smá smör 
  • 1/2 blaðlaukur smátt skorinn
  • 2 meðalstórar bökunarkartöflur, smátt skornar 
  • 1 krukka grilluð paprika (smá af olíunni líka eins og 2 msk)
  • 9 egg , léttþeytt
  • 1 dós sýrður rjómi 
  • 100 g rifinn ostur
  • Handfylli rifinn Parmesan ostur
  • Salt og pipar


Aðferð:  
  1. Hitið olíu og smjör á pönnu. (Athugið að það þarf að nota pönnu sem má fara inn í ofn)
  2. Látið laukinn malla í olíunni/smjörinu í smá stund eða þar til hann verður mjúkur í gegn. Bætið þá kartöflum og steikið í 1 - 2 mínútur, því næst bætið þið grilluðu paprikunum út á pönnuna. Blandið öllu vel saman og kryddið til með salti og pipar, steikið á pönnunni í 3 - 4 mínútur. 
  3. Á meðan létt pískið þið 0 egg og kryddið til með salti og pipar.
  4. Bætið rifnum osti saman við eggin og hellið eggjablöndunni út á pönnuna.
  5. Steikið á lágum hita í 6 - 8  mínútur. 
  6. Setjið eggjakökuna inn í ofn við 180°C í 15 - 20 mínútur eða þar til eggjakakan er stíf í gegn og gullinbrún. 
  7. Berið eggjakökuna fram með klettasalati og stráið gjarnan rifnum Parmesan osti yfir. 
Ekki missa af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:50 á Stöð 2. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×