Skýr niðurstaða meistararitgerðar: Refsistefna stjórnvalda í fíkniefnamálum virkar ekki Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 6. september 2015 16:16 Stjórnvöld hafa tekið harkalega á hverskyns fíkniefnabrotum. Dómar eru þungir og refsað er fyrir minnstu brot. Vísir/Anton/Gyða
Ragnheiður Gyða Stefánsdóttir, meistaranemi í lögfræði við Háskóla Íslands, komst að þeirri afdráttarlausu niðurstöðu í meistararitgerð sem hún skilaði í vikunni að fíkniefnastefna stjórnvalda hefði þveröfug áhrif þegar kemur að því að fækka fíkniefnabrotum. Hún hvetur stjórnvöld til þess að innleiða stefnu um skaðaminnkun, taka upp mannúðlegri úrræði og draga úr forræðishyggju. „Fíkniefnavandinn er fyrst og fremst heilbrigðisvandi og því er mikilvægt að taka á honum á þeim vettvangi,“ útskýrir Gyða, en það er hún jafnan kölluð, í ritgerðinni. „Rétturinn til lífs og rétturinn til aðstoðar vegna sjúkleika eru grundvallarmannréttindi sem allir eiga að njóta með mannlegri reisn, líka fíkniefnaneytendur.“Refsistefnan hreinlega ekki að virka „Það hefur sýnt sig að refsistefnan eins og hún er núna er ekki að virka, glæpum sem tengjast fíkniefnum og fíkniefnabrotum er ekki að fækka,“ segir hún í samtali við Vísi. „Og neytendum er alls ekki að fækka. Mér finnst kominn tími á það að horfast í augu við þá staðreynd að það verða alltaf fíkniefnaneytendur í samfélaginu og þeir eiga mannréttindi eins og allir aðrir. Þeir eiga rétt á heilbrigðisþjónustu og þess vegna þarf að hjálpa þessu fólki. Fíklar eru ekkert glæpamenn heldur bara veikt fólk.“Sprautufíklum þarf að hjálpa en ekki refsa að sögn Gyðu.Vísir/AntonGyða rannsakaði refsistefnu stjórnvalda vegna mikils áhuga á refsirétti en hún naut handleiðslu Ragnheiðar Bragadóttur prófessors við skrifin. „Ég var ekkert búin að gera mér upp neina skoðun, ég var aðeins búin að læra um þetta í refsirétti í skólanum og gerði mér grein fyrir því að það þyrftu einhverjar breytingar að eiga sér stað. En ég vissi ekki hvernig ætti að breyta eða hvað ætti að gera. Það eru margar leiðir sem hægt er að fara, það er kannski vandinn. Mismunandi lönd hafa farið mismunandi leiðir. Sum hafa til dæmis gert neysluskammta refsilausa eða hreinlega lögleitt fíkniefni.“Sjá einnig: Afglæpavæðing fíkniefna gæti orðið íslenskur veruleikiGera ætti vörslu neysluskammta refsilausa Gyða er ekki hlynnt lögleiðingu fíkniefna alfarið en hún telur að stjórnvöld ættu að gera vörslu neysluskammta refsilausa. „Það hefur verið farin sú leið að þeir séu refsilausir að minnsta kosti við fyrsta brot. Svo eru kannski einhverjar sektir þegar kemur að ítrekuðum brotum en það leiðir allavega ekki til handtöku og ákæru. Í því felst svo mikill kostnaður fyrir ríkið og samfélagið allt.“ Þá sé verið að stilla fíklum upp við vegg þegar þeim er gert að greiða tugþúsundir króna fyrir vörslu á fíkniefnum en lágmarkssektir eru fimmtíu þúsund. „Það má velta því fyrir sér hvað fíkill í neyð ætlar að gera til að borga svona sekt. Hann þarf í fyrsta lagi að fá sér nýjan skammt og svo borga sektina. Þetta ýtir undir glæpi og svo getur það á endanum leitt fólk út í vændi.“Frú Ragnheiður er skaðaminnkandi úrræði sem gerir fíklum kleift að neyta fíkniefna í sótthreinsuðu umhverfi og þar geta þeir losað sig við sprautunálar.Vísir/ErnirMarkmið refsinga er að vera öðrum víti til varnaðar auk þess sem í refsingu á að felast ákveðin betrun. Gyða segir núverandi löggjöf og stefna stjórnvalda í þessum efnum ekki ná markmiði sínu þegar kemur að fíkniefnabrotum þar sem þeim er ekki að fækka þó síður sé. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að fólk hætti að brjóta af sér ef það er enn með fíknivanda.“Opinber stefna yfirvalda ekki skaðaminnkun Meðferðarrúrræði í fangelsunum eru góð að mati Gyðu en of langir biðlistar eru sem grundvallast að mestu leyti á fjárskorti. Fangarnir, fangaverðir og fjölskyldur fanga hafa verið ánægð með meðferðarþjónustuna að sögn Gyðu. „Þessi meðferðarúrræði eru að ganga mjög vel og það mætti efla þau.Sjá einnig: Eltingaleikur lögreglu við neyslu ungmenna sagður fyndinn ef hann væri ekki svona sorglegur„Niðurstaðan í ritgerðinni var í rauninni sú að opinber stefna yfirvalda þarf að vera skaðaminnkun. Opinber stefna yfirvalda nú er ekki skaðaminnkun. Þeir einu sem bjóða upp á skaðaminnkandi úrræði eins og er eru frjáls félagasamtök eins og Rauði krossinn. Rauði krossinn hefur verið að vinna mjög gott starf með Frú Ragnheiði, en það er náttúrulega rosalega erfitt fyrir samtök eins og Rauða krossinn sem hafa takmarkað fjármagn að standa undir allri þessari þjónustu. Yfirvöld ættu að taka meiri þátt í því.“Skilaði meistararitgerðinni minni í dag, mjög góð en skrítin tilfinning að klára ritgerðina og kveðja laganáPosted by Gyða Stefánsdóttir on Friday, September 4, 2015Örlar á breyttu hugarfari Í Danmörku og Noregi hefur verið dregið úr smitsjúkdómum og ofneyslu fíkniefna með svokölluðum sprautuklefum sem eru eins konar heilsugæslur sem bjóða fíklum upp á verndað umhverfi þar sem hægt er að sprauta sig og losa sig við sprautunálar. „Þetta er auðvitað kostnaðarsamt úrræði þannig lagað en aftur á móti dregur þetta úr öðrum kostnaði sem hlýst af útbreiðslu smitsjúkdóma til dæmis.“ Hún segir jafnframt að það sé mikilvægt að takast á við þann sívaxandi vanda sem sprautunálar á víðavangi valda. Góðu fréttirnar eru að það örlar fyrir breyttu hugarfari hjá stjórnvöldum en Ragnheiður segist finna fyrir því. Kristján Þór Júlíusson hefur lýst því yfir að hann sé hallur undir afglæpavæðingu fíkniefna eins og kunnugt er og hann skipaði nefnd á síðasta ári sem skal móta stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum fíkniefnaneyslu. „Það er ekkert að fara að breytast ef fíklar þurfa að flýja lögregluna og lifa í undirheimum án þess að fá aðstoð,“ segir Gyða.
Tengdar fréttir Þingmaður vill stöðva framboð eiturlyfja því þá er eftirspurnin ekkert vandamál Þorsteinn Sæmundsson þingmaður sendir Helga Hrafni Gunnarssyni og öðrum tóninn vegna umræðunnar um lögleiðingu og aðgerðir lögreglu við að gera fíkniefni upptæk -- hann vill herða tökin. 3. september 2015 10:33 Fíkniefnahundar leituðu á nemendum FB á leið í busaferð Skólinn átti sjálfur frumkvæði að aðgerðinni. 28. ágúst 2015 17:03 Fíkniefnaleitin í FB: „Verið að beita eldgömlum hræðsluáróðri“ Stjórnarmaður í Snarrótinni gagnrýnir leitina harðlega og lögmaður telur hana brot á friðhelgi einkalífs nemenda. 28. ágúst 2015 21:47 Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Þingmaður vill stöðva framboð eiturlyfja því þá er eftirspurnin ekkert vandamál Þorsteinn Sæmundsson þingmaður sendir Helga Hrafni Gunnarssyni og öðrum tóninn vegna umræðunnar um lögleiðingu og aðgerðir lögreglu við að gera fíkniefni upptæk -- hann vill herða tökin. 3. september 2015 10:33
Fíkniefnahundar leituðu á nemendum FB á leið í busaferð Skólinn átti sjálfur frumkvæði að aðgerðinni. 28. ágúst 2015 17:03
Fíkniefnaleitin í FB: „Verið að beita eldgömlum hræðsluáróðri“ Stjórnarmaður í Snarrótinni gagnrýnir leitina harðlega og lögmaður telur hana brot á friðhelgi einkalífs nemenda. 28. ágúst 2015 21:47