Vatnið hitnar í Vaðlaheiðargöngum Sveinn Arnarsson skrifar 31. ágúst 2015 08:00 Mikill hiti er í göngunum og eru stórir blásarar fyrir utan munnann sem blása lofti inn í göngin
Heitavatnsrennslið í Vaðlaheiðargöngum vestanverðum er stöðugt og hefur hiti vatnsins náð 63 gráðum. Þegar stóra vatnsæðin kom í ljós síðasta sumar var vatnið um 43 gráður og runnu þá um 350 lítrar á sekúndu úr stafni ganganna. Enn er of mikið kaldavatnsrennsli austanmegin í göngunum til að geta hafið gangagröft þar.Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga ehf.Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, segir verktaka enn vera á svokölluðu blautu svæði í göngunum vestanmegin og því sé framvindan ekki hröð í augnablikinu. Göngin hafa lengst um 25 metra á viku síðustu vikurnar á meðan ekkert hefur verið borað austanmegin síðan kalt vatn fyllti göngin þar. "Um leið og við komumst úr þessu blauta svæði þá getum við grafið á meiri hraða en nú er gert," segir Valgeir og bendir á að þegar best lét lengdust göngin um eitt hundrað metra á viku sem er talið mjög gott. „Vatnið er um 63 gráðu heitt og við erum mikið að vinna í efnagraut og bergþéttingum til að halda áfram verkinu. Austan megin er unnið að vegskála og vegaframkvæmdum á meðan ekki er hægt að grafa. Við sjáum samt vatnsrennslið minnka þar og því förum við að sjá forsendur fyrir því að hefja útdælingu á vatninu og byrja að grafa austan megin líka,“ segir Valgeir. Hann telur þó að göngin verði hægt að opna í lok árs 2017. "Við gerum okkur vonir um það já. Við erum svona að kortleggja hvernig við sjáum framvinduna fyrir okkur og þetta gæti verið orðið klárt fyrir áramót 2017-2018.“
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira