Matur

Bestu kanilsnúðarnir

sigga dögg skrifar
Vísir/Gulur,rauður,grænn og salt

Berglind Guðmundsdóttir heldur úti hinu girnilega matarbloggi Gulur, rauður, grænn og salt.

Heimsins bestu kanilsnúðar

Snúðar

1 kg hveiti

5 dl mjólk, fingurvolg

½ bréf þurrger

125 g sykur

1 tsk. kardimommudropar (eða vanilludropar)

½ tsk. salt

1 egg

150 g smjör, skorið í litla teninga

Fylling

125 g smjör, mjúkt

2 msk. kanill

6 msk. sykur

1 egg og perlusykur til skrauts

Aðferð:

Blandið mjólk og geri saman í skál. Hellið öllum hráefnunum fyrir bolludeigið í skál, að smjörinu undanskildu, og hrærið. Bætið smjörinu saman við og hnoðið því vel saman við í allt að 10 mínútur.

Setjið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast í a.m.k. klukkustund.

Skiptið deiginu í tvennt og fletjið út í um 60 cm breiðan ferning.

Blandið kanil og sykri saman í skál.

Smyrjið helmingnum af smjörinu á deigið og stráið síðan helmingnum af kanilsykrinum yfir smjörið. Leggið deigið saman og skerið í 12-14 lengjur. Snúið upp á lengjurnar og vefjið þær saman í snúð, annar endinn upp og hinn niður (engar áhyggjur, þið fattið þetta).

Gerið eins með hinn helminginn af deiginu.

Ef þið viljið getið þið að sjálfsögðu gert snúðana á hinn venjubundna máta, en þessir líta bara svo vel út og gaman að prufa eitthvað nýtt.

Látið snúðana hefast í um hálftíma. Penslið með léttþeyttu eggi og stráið perlusykri yfir.

Setjið inn í 225°C heitan ofn í um 10-12 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×