Sepp Blatter: Ég er hreinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. ágúst 2015 16:47 Sepp Blatter. Vísir/Getty
Sepp Blatter, forseti FIFA, segist í viðtali við BBC að hann sé með hreina samvisku og algjörlega saklaus þegar kemur að spillingarmálunum sem margir háttsettir FIFA-menn eru flæktir í. Sepp Blatter hefur verið forseti FIFA frá árinu 1998 en hann mun láta af embætti í febrúar næstkomandi. Blatter var kosinn forset FIFA í fimmta sinn í maí en tilkynnti síðan að hann ætlaði að segja af sér og boða til nýrra kosninga. „Ég gerði það til að verja FIFA. Ég get varið sjálfan mig því ég nógu sterkur til þess," sagði Sepp Blatter við blaðamann BBC. Sepp Blatter hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir það hvernig komið er fyrir FIFA og hvernig Alþjóðasambandið og háttsettir menn innan þess voru á bólakafi í grófri misnotkun á peningum frá sambandinu. Blatter sjálfur hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu og það breyttist ekki í þessu viðtali. „Ég veit hvað ég hef gert og hvað ég hef ekki gert. Ég hef mína hreinu samvisku og ég er heiðarlegur maður. Ég er hreinn," sagði Blatter í viðtalinu. Tvær lögreglurannsóknir eru enn í gangi vegna spillingarmála innan FIFA en sjö starfsmenn sambandsins voru handteknir rétt fyrir ársþingið í maí. Meðal þess sem hefur verið rannsakað eru útboðin til að halda heimsmeistarakeppnirnar 2018 og 2022 en vangaveltur hafa verið uppi um að Rússland og Katar gætu missa keppnirnar ef sannanir um mútugreiðslur koma fram í dagsljósið.
FIFA Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Sport Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Enski boltinn Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu Fótbolti Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Fótbolti DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn Golf Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Opna bandaríska og hafnabolti Sport Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Ítalía kom til baka gegn Albaníu Spánverjar skoruðu mörkin Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Uppgjör: Stjarnan – Þór/KA 1-4 | Sandra María hættir ekki að skora Spánverjar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Sjáðu mörkin: Sviss byrjar af krafti „Það er erfitt að koma hingað og sækja stig“ Uppgjör: FH varði forskotið og tók öll stigin Emilía Kiær danskur meistari með Nordsjælland Öruggur sigur Sviss í fyrsta leik Brjálað stuð og blíða á pæjumótinu Cole Palmer skapaði óvart jarmveislu á Twitter Vistaskipti Ísaks til Düsseldorf staðfest formlega Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Spánverjar missa miðvörð í meiðsli fyrir fyrsta leik Lallana snýr aftur til Southampton Yngsti þjálfarinn stýrði stærsta opnunarsigri í sögu EM Sir Alex og Mourinho sátu saman á opnunarleik EM Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM Goðsögn kveður Dortmund Mættur á EM eftir að hafa gengið frá Glasgow til München Stórskotalið var á blaðamannafundi Vals Sjá meira