Verðlagseftirlit ASÍ: Matarkarfan ódýrust í Bónus Atli Ísleifsson skrifar 26. ágúst 2015 11:13 Mikill munur var á hæsta og lægsta verði milli verslana, en í um helmingi tilvika var um 10 til 30 prósent verðmun að ræða. Vísir/Vilhelm
Bónus við Kjarnagötu á Akureyri var með lægsta verð í um helmingi tilvika í nýrri verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ í lágvöruverðsverslunum, þjónustuverslunum og stórmörkuðum víðsvegar um land. Iceland Engihjalla var oftast með hæsta verðið eða í um fjörutíu prósent tilvika.Í frétt á vef ASÍ segir að mikill munur hafi verið á hæsta og lægsta verði milli verslana, en í um helmingi tilvika var um 10 til 30 prósent verðmun að ræða. Mestur hafi verðmunurinn verið 102 prósent. Minnstur verðmunur var í vöruflokknum osti, viðbiti og mjólkurvörum.Flestar vörur til í Fjarðarkaupum „Flestar vörurnar voru til í verslun Fjarðarkaupa eða 115 af 121, næstflestar í verslun Iceland eða 109. Fæstar vörurnar í könnuninni voru fáanlegar í Samkaupum-Úrvali á Ísafirði eða 77 af 121, þar á eftir kom Krónan Nóatúni sem átti 92 vörur. Þegar borin eru saman verð á milli verslananna á þeim vörutegundum sem verðlagseftirlitið skoðaði var Iceland með hæsta verðið á 51 vörum af 121, Samkaup-Úrval var 25 sinnum hæst, Hagkaup 22 og Víðir Skeifunni 16 sinnum. Bónus var með lægsta verðið á 67 vörum af af 121, Fjarðarkaup 19 sinnum lægst, Krónan 16 og Nettó Mjódd 12 sinnum. Minnstur verðmunur í könnunni var á spelt flatkökum frá Ömmubakstri sem voru dýrastar á 242 kr. hjá Fjarðarkaupum en ódýrastar á 229 kr. hjá Krónunni, verðmunurinn var 6%. Mestur verðmunur að þessu sinni var á jöklasalati sem var ódýrast á 198 kr./kg. hjá Krónunni en dýrast á 399 kr./kg. hjá Hagkaupum, verðmunurinn 201 kr. eða 102%.Minnstur verðmunur er í vöruflokknum osti, viðbiti og mjólkurvörumMinnstur verðmunur í mælingunni er í vöruflokknum osti, viðbiti og mjólkurvörum en hann var samt umtalsverður og náði þegar mest var ríflega 25%. Sem dæmi má nefna 250 gr. af MS sveppasmurosti sem var dýrastur á 440 kr. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrastur á 351 kr. hjá Nettó, verðmunurinn er 25%. Þá var 15% verðmunur á 500 gr. af Húsavíkurjógúrti með peru og vanillu sem var dýrust á 258 kr. hjá Hagkaupum en ódýrust á 225 kr. hjá Víði. Verðmunurinn var öllu minni á Stoðmjólk sem var dýrust á 120 kr. hjá Samkaupum-Úrvali og Hagkaupum en ódýrust á 112 kr. hjá Fjarðarkaupum sem gerir 7% verðmun. Af öðrum vörum í könnuninni má nefna að mikill verðmunur var á ORA sardínum í olíu sem voru dýrastar á 379 kr. hjá Iceland en ódýrastar á 267 kr. hjá Bónus, verðmunurinn var 112 kr. eða 42%. Kíló af vatnsmelónu var dýrast á 299 kr. hjá Hagkaupum en ódýrast á 149 kr./kg. hjá Nettó sem gerir 101% verðmun. Orkudrykkurinn Red Bull 250 ml. var ódýrastur á 195 kr. hjá Bónus en dýrastur á 249 kr. hjá Iceland, sem er 28% munur,“ segir í fréttinni. Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Kjarnagötu, Krónunni Nóatúni, Nettó Hverafold, Iceland Engihjalla, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Samkaupum-Úrvali Ísafirði, Hagkaupum Seltjarnarnesi og Víði Skeifunni.Nánar má lesa um verðkönnunina á vef ASÍ.
Mest lesið Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira