Körfubolti

Ræddu um Duranona í lyfjaprófinu

Pavel er alltaf hress.
Pavel er alltaf hress. vísir/anton
Pavel Ermolinskij fór á kostum á Twitter er hann lenti í lyfjaprófi með félögum sínum í körfuboltalandsliðinu. Pavel, Hlynur Bæringsson, Sigurður Þorvaldsson og Haukur Helgi Pálsson lentu allir í úrtaki eftir æfingu landsliðsins í gær.

Það getur tekið tíma að klára lyfjapróf og hinn hnyttni Pavel stytti sér stundir með því að greina frá því helsta sem gekk á. Ekki veitti af því hann var síðastur af félögum sínum til þess að skila af sér prufu. Það hafðist þó að lokum seint í gærkvöldi.

Strákarnir okkar eru á fullu í undirbúningi sínum fyrir lokakeppni EM í körfubolta. Riðill okkar manna fer fram í Berlín en fyrsti leikur er laugardaginn 5. september gegn Þjóðverjum.

Hér að neðan má sjá tístin frá Pavel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×