Hrottalegt morð vekur óhug í Bangladess Bjarki Ármannsson skrifar 13. júlí 2015 23:50 Mynd af Twitter-síðu sem stofnuð hefur verið vegna árásarinnar.
Þúsundir Bangladessa krefjast nú réttlætis fyrir þrettán ára dreng sem var barinn til dauða af hópi manna sem tóku árásina upp á myndband. Yfirvöld í landinu lofa því að bregðast við af hörku. Myndbandið hefur ratað víða á netinu en þar sjást árásarmennirnir hlæja og hæðast að drengnum á meðan þeir binda hann við staur og berja hann með stöng. Drenginn saka þeir um að hafa reynt að stela reiðhjólavagni. Grunaðir þjófar verða oft fyrir árásum í Bangladess en þessi tiltekna árás hefur vakið mikinn óhug meðal innfæddra, svo mikinn að lögregla hefur skipað sérstakt teymi til þess að rannsaka hana.Að því er BBC greinir frá hafa þrír verið handteknir í tengslum við árásina, þeirra á meðal einn sem hafði flúið til Sádi-Arabíu. Innanríkisráðherra Bangladess segir í samtali við fjölmiðla þar í landi að engum árásarmannanna verði hlíft. Drengurinn hét Samiul Alam Rajon og vann við að selja grænmeti með fjölskyldu sinni. Krufning leiddi í ljós að höfuðmeiðsli drógu hann til dauða en rúmlega sextíu sár fundust á líkama hans.There can never be a worse crime than abusing an innocent child to death. Say no to child abuse!একটি নিষ্পাপ শিশুকে নির্যাতন করে মেরে ফেলার মতো বড় অপরাধ মনে হয় আর নেই। শিশু নির্যাতনকে না বলুন!Posted by Mushfiqur Rahim on 13. júlí 2015
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Fleiri fréttir Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Sjá meira