Formúla 1

Fjölmargir hafa minnst Bianchi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bianchi var 26 ára þegar hann lést.
Bianchi var 26 ára þegar hann lést. vísir/getty
Fjölmargir hafa minnst franska ökuþórsins Jules Bianchi sem lést í morgun eftir að hafa legið í dái í níu mánuði vegna alvarlegra höfuðáverka sem hann varð fyrir í japanka kappakstrinum í október í fyrra.

„Ég votta fjölskyldu hans og vinum mína dýpstu samúð,“ skrifaði Jenson Button á Twitter og heimsmeistararinn Lewis Hamilton tók í sama streng: „Þetta er mikill sorgardagur. Biðjum fyrir aðstandendum Jules. Hvíl í friði og guð blessi þig.“

Bianchi keyrði fyrir Manor Marussia og en hann keppti í 34 kappökstrum fyrir þeirra hönd. Hann er fyrsti Formúlu 1-ökumaðurinn í 21 ár sem deyr í kjölfar slyss, eða síðan Brasilíumaðurinn Ayrton Senna lést eftir hörmulegt slys í San Marinó-kappakstrinum 1994.

John Booth, liðsstjóri Manor Marussia, segir að framtíð Bianchi hafi verið björt.

„Jules bjó yfir miklum hæfileikum. Hann átti glæsta framtíð fyrir höndum, sem hann verðskuldaði svo sannarlega,“ sagði Booth en Bianchi vann fyrstu stig Manor-liðsins í Formúlu 1 þegar hann kom níundi í mark í Mónakó-kappakstrinum 25. maí 2014.

„Hann var líka frábær einstaklingur sem heillaði fjölda fólks um allan heim. Það sá, líkt og ég, kappsfullan ökumann en jafnframt einstaklega hlýjan, hógværan og viðkunnanlegan mann.“

Eddie Jordan, álitsgjafi hjá BBC og fyrrverandi eigandi Jordan-liðsins, minntist Bianchi sömuleiðis hlýlega.

„Það gerist sjaldan að við finnum svona gimstein, eins og Lewis Hamilton, Ayrton Senna og Michael Schumacher. Jules átti möguleika á að komast í hóp þeirra.

„Bianchi var virtur, elskaður og dáður. Hann var frábær strákur og verðandi heimsmeistari.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×