Jón Ólafsson tapar lögbannsmáli í Hæstarétti Bjarki Ármannsson skrifar 4. júní 2015 19:22 Fyrirtæki Jóns fékk lögbann á notkun vörumerkisins árið 2013 en það hefur verið fellt úr gildi. Vísir/Arnþór/Anton
Hæstiréttur sýknaði í dag fyrirtækið Iceland Glacier Wonders af kröfum vatnsátöppunarfyrirtækisins Iceland Water Holdings, sem fór fram á lögbann á notkun vörumerkisins „Iceland Glacier.“ Iceland Water Holdings, fyrirtæki Jóns Ólafssonar athafnamanns, fékk lögbann á vörumerkið hjá Sýslumanni Reykjavíkur árið 2013 en það var fellt úr gildi í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra. Dómur í öðru máli, sem einnig var kveðinn upp í Hæstarétti í dag, féll þó Iceland Water Holdings í vil. Þar fór fyrirtækið fram á að Iceland Glacier Wonders yrði bannað að nota vörumerkið „Iceland Glacier“ í firmaheiti sínu og að því yrði gert að afmá vörumerkið úr því fyrir 20. júní. „Iceland Glacier“ er skráð vörumerki fyrirtækis Jóns en Iceland Glacier Wonders, sem stofnað var af Hollendingnum Otto Spork, selur vatnsflöskur með heitinu „Sno Iceland Glacier Water.“ Í dómi Hæstaréttar var ekki fallist á að villst yrði á merkjunum tveimur. Dómurinn taldi að sjónlíking merkjanna væri verulega frábrugðin og að hljóðlíking væri ekki fyrir hendi. Var dómur Héraðsdóms Reykjavíkur þannig staðfestur og var Iceland Water Holdings dæmt til að greiða Iceland Glacier Wonders 500.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.
Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira