Heilsa

Saga tveggja typpis manns

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Typpi eru reglulega í fjölmiðlum, annað hvort því þau eru alltof stór eða því þau eru tvö á einum og sama manninum.

Þessi ágæti maður sem er með tvö typpi hefur loksins hripað söguna sína niður á rafrænt prent og nú getum við komist að því hvernig lífið er með diphallus en vísindin vita um allavega sex slík tilvik í heiminum.

Sagan hans er ótrúlega áhugaverð og má lesa góðan bút beint af henni á Amazon vefsíðunni.

Honum tókst að halda typpunum leyndum frá öllum utan foreldra og lækna allt til sextán ára aldurs. Hann hafði ekki kippt sér neitt sérstaklega upp við að vera með tvö typpi en var heldur ekki að auglýsa það. Foreldrar sögðust ekki hafa fjarlægt annað því það var ekki augljóst hvort typpið var hið upprunalega og bæði voru jafn starfhæf þó hann segi sjálfur að hægra typpið sé sterkara.

Hann komst í heimspressuna þegar hann svaraði spurt & svarað þræði á Reddit og setti inn mynd af limunum. Hann hefur ekki gefið upp hver hann er því hann vill vernda friðhelgi sitt, skiljanlega.

Ólíkt manninum með stærsta typpi í heimi, Jonah Falcon, sem á það til að leiðast hinn vafasami heiður (og íhugar að gefa reðursafni Íslands liminn að honum látnum).

Það var þó ekki fyrr en hann var 16 ára að kela við stelpu í bíl sem typpin uppgvötuðus af umheiminum og þá var ekki aftur snúið því stúlkan lét upplýsingarnar leka um allan grunnskólann hans.

Maðurinn segist vera í sambandi við karl og konu og vera tvíkynhneigður. Ef þig vantar áhugaverða lesningu á lesbrettið þitt þá er margt vitlausara en saga þessa ágæta manns. Hún er skreytt ýmsum kynferðislegum upplifunum sem gæti heillað einhverja og jafnvel kveikt á nýjum fantasíum um karl með tvo limi.


Tengdar fréttir

Smokkar í stærðum?

Ef smokkur getur teygst sem nemur hálfum handlegg, af hverju er hann þá fáanlegur í stærðum?

Bogið typpi

Það er eðlilegt að vera með bogið typpi en getur boginn verið of mikill, jafnvel hættulegur?

Kynlífstæki fyrir typpi

Stundum er kvartað undan því að kynlífstækjamarkaðurinn sé of píku miðaður en vissulega eru til tæki fyrir typpi.

Umskorið typpi

Umskurður typpa er ekki algengur hér á landi þó hann sé það víðar. Hvað felst í því að umskera typpi og hefur það áhrif á kynlífið?

Kynfæramót

Myndir þú gera mót af þínum kynfærum?

Risvandamál

Hér er fjallað um vandamál við stinningu typpis, ekki erfðileika við að vakna á morgnanna.

Skiptir typpastærð máli?

Umræðuefni sem flest allir hafa rætt á einhverjum tímapunkti en hvert er svarið? Þessi heimildarmynd fjallar um mann með lítið typpi.

Forhúðin

Forhúðin ver kónginn (fremsta hluta typpisins) og getur verið þröng, víð, mikil, lítil og jafnvel ekki til staðar.

Morgunbóner

Vaknaðir þú með hann beinstífan í morgun? Þó það geti verið meira vesen en gleði þá er þetta samt merki um heilbrigði.

Getur typpið minnkað?

Margir pæla í typpastærð en getur typpið minnkað eða jafnvel horfið?

Karlmennskutákn?

Mýtur og goðsagnir um ofurkarlmennsku byggað á typpastærð hafa gengið manna á milli í langan tíma en hingað og ekki lengra. Þessi heimildarmynd varpar nýju ljós á allt sem þú taldir þig vita um typpið og stærð þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×