Viðskipti innlent

Fá frí til að fagna 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Birna Einarsdóttir, bankastjóri, sést hér til hægri.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri, sést hér til hægri. vísir
Starfsmönnum Íslandsbanka verður veitt frí eftir hádegi 19. júní næstkomandi til að fagna 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá frá bankanum.

Ríkisstjórn Íslands hvetur vinnuveitendur, jafnt á almennum vinnumarkaði sem og hjá ríki og sveitarfélögum, til að gera starfsmönnum sínum kleift að taka þátt í skipulögðum hátíðarhöldum þennan dag. Útibú bankans verða því lokuð eftir hádegi 19. júní en nauðsynlegri bankaþjónustu verður þó viðhaldið.

Hjá Íslandsbanka starfa um 950 manns. Í tilkynningunni segir að rík áhersla hafi verið lögð á jafnréttismál á undanförnum árum hjá bankanum. Íslandsbanki hafi starfað eftir jafnréttisáætlun sem sé leiðarvísir í jafnréttismálum kynjanna innan bankans. Áhersla sé lögð á jafnan rétt kynjanna í ráðningarstefnu bankans sem og jafnan rétt til starfsþróunar. Í dag eru konur í 52% af stjórnendastöðum í bankanum. Þá uppfyllir bankinn einnig kröfur um jöfn hlutföll kynja í stjórn bankans en í henni sitja 4 konur og 3 karlmenn.

Íslandsbanki er einn styrktaraðila ráðstefnunnar We Inspirally sem verður haldin hér á landi í kringum kosningaafmælið. Á ráðstefnunni verður fjallað um kynjamisrétti og hvaða leiðir eru færar til að leiðrétta það.

Þetta er alþjóðleg ráðstefna þar sem boðið verður upp á fjölda fyrirlestra frá sérfræðingum víðs vegar að úr heiminum.

„Jafnréttismál eru málefni beggja kynja og koma okkur því öllum við,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.

„Það er ekki bara spurning um mannréttindi að bæði kynin hafi jöfn tækifæri til athafna heldur er jafnrétti einnig mikilvægt í efnahagslegu tilliti.  Þann 19. júní munum við fagna þeim góða árangri sem náðst hefur í þessum málum og hvetjum við starfsmenn bankans að taka þátt.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×