Fá frí til að fagna 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna Stefán Árni Pálsson skrifar 15. apríl 2015 16:06 Birna Einarsdóttir, bankastjóri, sést hér til hægri. vísir
Starfsmönnum Íslandsbanka verður veitt frí eftir hádegi 19. júní næstkomandi til að fagna 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá frá bankanum. Ríkisstjórn Íslands hvetur vinnuveitendur, jafnt á almennum vinnumarkaði sem og hjá ríki og sveitarfélögum, til að gera starfsmönnum sínum kleift að taka þátt í skipulögðum hátíðarhöldum þennan dag. Útibú bankans verða því lokuð eftir hádegi 19. júní en nauðsynlegri bankaþjónustu verður þó viðhaldið. Hjá Íslandsbanka starfa um 950 manns. Í tilkynningunni segir að rík áhersla hafi verið lögð á jafnréttismál á undanförnum árum hjá bankanum. Íslandsbanki hafi starfað eftir jafnréttisáætlun sem sé leiðarvísir í jafnréttismálum kynjanna innan bankans. Áhersla sé lögð á jafnan rétt kynjanna í ráðningarstefnu bankans sem og jafnan rétt til starfsþróunar. Í dag eru konur í 52% af stjórnendastöðum í bankanum. Þá uppfyllir bankinn einnig kröfur um jöfn hlutföll kynja í stjórn bankans en í henni sitja 4 konur og 3 karlmenn. Íslandsbanki er einn styrktaraðila ráðstefnunnar We Inspirally sem verður haldin hér á landi í kringum kosningaafmælið. Á ráðstefnunni verður fjallað um kynjamisrétti og hvaða leiðir eru færar til að leiðrétta það. Þetta er alþjóðleg ráðstefna þar sem boðið verður upp á fjölda fyrirlestra frá sérfræðingum víðs vegar að úr heiminum. „Jafnréttismál eru málefni beggja kynja og koma okkur því öllum við,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. „Það er ekki bara spurning um mannréttindi að bæði kynin hafi jöfn tækifæri til athafna heldur er jafnrétti einnig mikilvægt í efnahagslegu tilliti. Þann 19. júní munum við fagna þeim góða árangri sem náðst hefur í þessum málum og hvetjum við starfsmenn bankans að taka þátt.“
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira