Framhaldsskólakennarar skrifa undir nýjan samning Atli Ísleifsson skrifar 1. apríl 2015 10:30 Samninganefndir FF og FS sem skrifuðu undir samninginn í morgun. Mynd/Kennarasambandið
Fulltrúar Kennarasambands Íslands og samninganefndar ríkisins skrifuðu undir nýjan kjarasamning í morgun vegna ríkisrekinna framhaldsskóla. Félagsmenn Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í ríkisreknum framhaldsskólum felldu nýverið samkomulag frá 4. febrúar um nýtt vinnumat og þar með voru samningar þeirra lausir.Í frétt á vef Kennarasambandins segir að könnun meðal félagsmanna hafi leitt í ljós að 76 prósent þeirra voru fylgjandi því að gengið yrði á ný til samninga á grundvelli vinnumatsins. „Í kjölfarið settust samninganefndirnar niður og byggir samningurinn sem undirritaður var í dag á hugmyndafræði þess,“ segir í fréttinni. Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir nýtt samkomulag í helstu atriðum líkt hinu fyrra en nú sé búið að jafna mun á milli greina, styrkja ramma utan um ráðningarhlutföll og tryggja það að sýnidæmi vinnumats gildi sem lágmarksviðmið. Nýtt samkomulag verður sent félagsmönnum Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum síðar í dag en formleg kynning á því verður strax eftir páska. Í framhaldi verða greidd um samkomulagið atkvæði og á þeirri atkvæðagreiðslu að vera lokið eigi síðar en 15. apríl.
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Efast viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Fleiri fréttir Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Sjá meira