Handbolti

Hafnarfjarðarslagur í átta liða úrslitunum | Sjáðu hverjir mæta hverjum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hafnarfjarðarliðin mætast í átta liða úrslitunum.
Hafnarfjarðarliðin mætast í átta liða úrslitunum. vísir/vilhelm
Lokaumferðin í Olís-deild karla fór fram í kvöld og því er ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni, en úrslitakeppnin hefst á þriðjudaginn.

Fyrir daginn var ljóst að Valur og Framarar myndu mætast, en þessi lið voru í fyrsta og áttunda sæti deildarinnar. Það gat ekki breyst í dag.

Það verður Hafnarfjarðarslagur í átta liða úrslitunum, en þessi lið lentu í fjórða og fimmta sæti deildarinnar. FH-ingar lentu í fjórða sæti og eru því með heimavallarréttinn.

Alla leikina má sjá hér að neðan, en úrslitakeppnin hefst eins og fyrr segir á þriðjudag. Vísir mun fylgjast vel með gangi mála í úrslitakeppninni.

Þessi lið mætast í úrslitakeppninni:

Valur - Fram

Afturelding - ÍBV

ÍR - Akureyri

FH - Haukar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×