Viðskipti innlent

Búist við að olíuverð haldist lágt út árið

ingvar haraldsson skrifar
Búist er við að olíuverð haldist lágt í Bandaríkjunum þrátt fyrir að dregið hafi úr framleiðslu.
Búist er við að olíuverð haldist lágt í Bandaríkjunum þrátt fyrir að dregið hafi úr framleiðslu. vísir/epa
Búist er við að olíuverð haldist lágt út þetta ár og gæti raunar fallið á næstu vikum. Þetta er mat greiningar fjárfestingarbankans Goldman Sachs sem telja að verð á tunnu af olíu verði um 40 dollarar í Bandaríkjunum næstu þrjá mánuði, en á mánudaginn náði olíuverð sjö vikna hámarki. Það stendur nú í 51,45 dollurum á tunnu og er því búist við að verð muni lækka á næstunni. Marketwatch greinir frá.

Olíuverð byrjaði að lækka síðasta sumar vegna lítillar eftirspurnar og aukins framboðs á olíu, m.a. vegna nýrra aðferða við að vinna olíu, svokallaðra hliðarborana sem á ensku nefnist fracking.

Marketwatch greindi frá því í lok mars að olíubirgðir í Bandaríkjunum hefðu ekki verið hærri í átta áratugi. Goldman Sachs býst við að olíubirgðirnar muni ná hámarki á næstu vikum og í kjölfarið fara lækkandi en dregið hefur úr framleiðslu á olíu vegna þess hve verð hefur haldist lágt.

Því spáir Goldman Sachs að olíuverð muni hækka í um 65 dollara á tunnu á fyrri hluta ársins 2016 sem er um 30 prósent hækkun miðað við núverandi olíuverð.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×