Viðskipti innlent

Björgólfur Thor auglýstur sem fyrirlesari

ingvar haraldsson skrifar
Björgólfur Thor Björgólfsson er nú orðinn fyrirlesari.
Björgólfur Thor Björgólfsson er nú orðinn fyrirlesari. vísir/vilhelm
Björgólfur Thor Björgólfsson hefur gengið til liðs við fyrirtækið Chartwell Speakers Bureau sem sér um að bóka og skipuleggja fyrirlestra með nafntoguðum einstaklingum um allan heim.

Meðal þeirra sem eru á mála hjá Chartwell eru Mitt Romney, fyrrum forsetaframbjóðandi Bandaríkjanna, Charles Adler, einn stofnenda fjármögnunarsíðunnar Kickstarter, Scott Brown, bandarískur öldungadeildarþingmaður og nú, Björgólfur Thor.

Ekki er gefið upp hvað kosti að fá Björgólf sem fyrirlesara. Það velti á eðli verkefnisins, tímasetningu og hve langt Björgólfur þurfi að ferðast.

Á síðunni er Björgólfur sagður hafa einstaka sögu að segja um hvernig hann tapaði auðæfum sínum og auðgaðist á ný. Chartwell fer yfir feril Björgólfs frá því hann seldi Heineken rússnesku bjórverksmiðju Bravo fyrir 100 milljónir dollara. Svo er sagt frá því hvernig Björgólfur tapaði 99% af auðæfum sínum í hruninu en náði svo vopnum sínum á ný.

Sjá einnig: Björgólfur snýr aftur á lista Forbes

Björgólfur snéri nýverið á lista Forbes yfir milljarðamæringa heimsins, eftir fimm ára fjarveru. Auðævi hans eru nú metin á 1,3 milljarða dollara, um 177 milljarða íslenskra króna sem gerir Björgólf að 1415. ríkasta manni heims.


Tengdar fréttir

Björgólfur Thor gat ekki hjálpað föður sínum

Í nýrri bók sinni gerir Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir upp við fortíðina og viðskiptalegan viðskilnað sem varð á milli hans og Björgólfs Guðmundssonar föður hans. Björgólfur segir föður sinn hafa dreift kröftum sínum um of fyrir hrun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×