Björgólfur Thor stefnir Róberti Wessman sem svarar með ísfötuáskorun Kjartan Atli Kjartansson skrifar 27. ágúst 2014 18:11 Björgólfur Thor og Róbert Wessman
Björgólfur Thor Björgólfsson hefur stefnt Róberti Wessman sem hefur svarað Björgólfi með því að senda honum ísfötuáskorun svokallaða. „Ég vil nota tækifærið og skora á Björgólf Thor að fara í ísfötubað, enda virðist hann þurfa smá kælingu. Þannig má líka komast hjá því að eyða tíma og fjármunum dómstóla í að fjalla um tilhæfulaus mál,“ segir Róbert í yfirlýsingu vegna málsins. Stefna Björgólfs á hendur Róberti snýst um deilur vegna viðskipta sem þeir stunduðu saman árið 2007. Björgólfur fer fram á tvær milljónir evra, eða rúmlega 300 milljóna króna, í skaðabætur vegna viðskiptanna. Björgólfur stefnir einnig Árna Harðarsyni, sem ásamt Róberti var forsvarsmaður fyrirtækisins Salt Investment ehf. Fyrirtæki í eigu Björgólfs, Novator Pharma, og dótturfyrirtæki Salt Investment, Salt Pharma, voru í jöfnum hlutföllum eigendur félegsins Mainsee Holding. Þann 7. september 2007 var gerður samningur sem fól í sér að Mainsee, í eigu fyrirtækja Róberts og Björgólfs, keypti samheitalyfjarekstur og vörulager fyrirtækisins DeltaSelect. Björgólfur telur að fjármunir, eins og kemur fram í stefnunni, sem hann hafi átt tilkall til hafi hafi ekki skilað sér til hans.Stefnan „tilhæfulaus með öllu“ Róbert Wessman telur stefnuna vera algjörlega tilhæfulausa og sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins:„Enn og aftur fara spunameistarar Björgólfs Thors Björgólfssonar af stað og í þetta skiptið er sett fram tilefnislaus stefna sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Björgólfur Thor er oft hugmyndaríkur þegar kemur að því að spinna sögur og í þetta skiptið fer hann af stað með málatilbúnað sem hefur það eina markmið að slá ryki í augu almennings.Þetta virðist einnig vera hluti af stöðugri varnarbaráttu Björgólfs Thors á Íslandi þar sem hann ver skaddað mannorð sitt. Ég vil nota tækifærið og skora á Björgólf Thor að fara í ísfötubað, enda virðist hann þurfa smá kælingu. Þannig má líka komast hjá því að eyða tíma og fjármunum dómstóla í að fjalla um svona tilhæfulaus mál. Þann 25.apríl 2012 gerði ég og Salt investment dómsátt við Björgólf Thor (félög hans) sem fól í sér að máleferlum aðila myndu ljúka. Allir ættu að þekkja niðurstöðu málarekstur gegn Novator, þar sem Novator var gert að greiða 40 milljónir evra en innheimta þeirra fjármuna reyndist árangurslaus.Þrátt fyrir að dómsáttin hafi verið Björgólfi Thor mjög hagstæð virðist sem hann sé gjörsamlega friðlaus í þessu máli og er greinilega mikið um að halda áfram deilum við mig. Ég mun gera gagnkröfu í málinu á Björgólf vegna Mainsee sem er mun hærri, fari málið til dómstóla.Ég ætla mér ekki munnhöggvast við Björgólf í fjölmiðlum um þetta mál en það verður áhugavert að mæta honum í dómsal þar sem gerð verður ítarleg grein fyrir málavöxtum og þessum aðdróttunum svarað. Ég á hinsvegar ekki von á öðru en að málinu verði vísað frá, enda tilhæfulaust með öllu.“Skilja ekki málatilbúnaðÍ skriflegu svari frá forsvarsmönnum Salt Investment kemur fram að þeir ætli að taka til varna, þrátt fyrir að skilja ekki á hverju stefnan er byggð. „Við skiljum ekki stefnuna eða á hverju hún er byggð en verðum náttúrulega að taka til varna og höfum ekki áhyggjur af niðurstöðunni. Hins vegar mun Róbert, úr því að Björgólfur var svo friðlaus yfir því að eiga ekki í dómsmáli við hann, gera gagnkröfur í málinu á Björgólf sem eru mun hærri. Allir vita að Róbert vann dómsmál á hendur Novator uppá 40 milljónir evra sem ekki var hægt að innheimta hjá félaginu. Eigendur Salt Investments telja sig ekki geta svarað frekari spurningum um stefnuna vegna þess að þeir skilja ekki á hverju hún er byggð. „Við viljum ekki flytja málið í fjölmiðlum, en viljum þó taka fram að málsatvikum er rangt lýst í stefnunni og ísfötubað gæti hjálpað Björgólfi við þessar aðstæður.“
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira