Spá 0,6% hækkun vísitölu neysluverðs Stefán Árni Pálsson skrifar 11. febrúar 2015 11:35 Ef spá Fjármálaráðgjafar Capacent gengur eftir er verðbólgan þriðja mánuðinn í röð undir neðri mörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabanka og heldur að lækka. Vísir/Heiða
Capacent spáir 0,6% hækkun vísitölu neysluverðs í febrúar en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Á sama tíma fyrir ári síðan hækkaði vísitala neysluverðs um 0,7% og lækkar því ársverðbólgan úr 0,8% í 0,7%. Í tilkynningunni segir að nokkur óvissa sé til staðar sem liggi aðallega í hvernig mæling á verði flugfargjalda verður í mánuðinum. Lausleg könnun Capacent bendir til að verð flugfargjalda hafi hækkað milli janúar og febrúar enda hefur verð á olíu hækkað um 15% frá lokum janúar.Hækkun olíuverðs um 15% kemur fram í eldsneytisverði Hins vegar sé gert ráð fyrir að sú lækkun sem gert var ráð fyrir í síðasta mánuði komi til móts við þá hækkun sem verðkönnun bendir til að hafi orðið milli janúar og febrúar. Gert er því ráð fyrir lækkun flugfargjalda sem nemur 7,5% sem hefur 0,12% áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Ef spá Fjármálaráðgjafar Capacent gengur eftir er verðbólgan þriðja mánuðinn í röð undir neðri mörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabanka og heldur að lækka. Ef horft er á vísitölu neysluverðs án húsnæðis var verðhjöðnun sem nam 0,6% í janúar síðastliðnum.Annar liður sem hækkun olíuverðs hefur áhrif á er eldsneytisverð en það hefur hækkað um 2,5% samfara hækkun olíuverðs en áhrif þess á vísitölu neysluverðs eru 0,1% til hækkunar en ekki er gert ráð fyrir frekari hækkun eldsneytisverðs en olíuverð virðist heldur vera að dala síðustu daga. Hinum árlegu vetrarútsölum lauk nú um mánaðarmótin. Hækkun á verði fatnaðar, húsgagna raftækja og annarra vara vegna útsöluloka skila sér í um 0,5 til 0,6% hækkun vísitöluneysluverðs. Aðrir veigamiklir liðir sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs er matvælaverð og húsnæðisliður vísitölu neysluverðs. Ekki er gert ráð fyrir hækkun matvælaverðs. Matvælaverð hækkaði um 2,6% í síðasta mánuði og virðast því áhrif virðisaukaskattsbreytinga að mestu komnar inn í matvælaverð þó ekki sé loku fyrir það skotið að lítilsháttar hækkun verði á matvælaverði sem hefði óveruleg áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar.
Mest lesið Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira