Handbolti

Fjórir leikir af átta klárir í sextán liða úrslitunum á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Spánverjar gætu beðið íslenska landsliðsins í átta liða úrslitunum vinni Ísland næstu tvo leiki.
Spánverjar gætu beðið íslenska landsliðsins í átta liða úrslitunum vinni Ísland næstu tvo leiki. Vísir/Getty
Keppni í A- og B-riðli á HM í handbolta í Katar lauk í dag en Brasilía og Túnis voru síðustu þjóðirnar úr þessum riðlum til þess að tryggja sér farseðil í sextán liða úrslitin.

Eftir leiki dagsins er ljóst hvaða þjóðir mætast í fyrstu fjórum leikjunum í sextán liða úrslitunum en þeir munu allir fara fram á sunnudaginn.

Strákarnir hans Patreks í Austurríki mæta gestgjöfunum frá Katar í sextán liða úrslitunum en Austurríki væri að fara í leik á móti Slóveníu hefði liðið unnið Makedóníu í lokaleiknum í dag.

Heimsmeistarar Spánverja mæta Túnis og þá mætast Slóvenía og Makedónía í uppgjöri tveggja þjóða úr gömlu Júgóslavíu.

Vinni íslenska landsliðið sinn leik á móti Egyptum á morgun, tryggir liðið sér þriðja sætið í sínum riðli. Þá myndu annaðhvort heimsmeistarar Spánar eða Túnis bíða íslenska liðsins kæmist það í gegnum sextán liða úrslitin.

Leikir sunnudagsins í sextán liða úrslitum HM í handbolta:

Spánn - Túnis

Króatía - Brasilía

Austurríki - Katar

Slóvenía - Makedónía


Tengdar fréttir

Brasilía og Túnis tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitunum

Brasilía (A-riðill) og Túnis (B-riðill) urðu í dag síðustu liðin í sínum riðlum til þess að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum á HM í handbolta í Katar. Túnisbúar höfðu ekki mikið fyrir sigri á Íran en það reyndi meira á Brasilíska liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×