Spurningum vísað til EFTA dómstólsins í 1000 milljarða Icesave dómsmáli ingvar haraldsson skrifar 12. mars 2015 15:08 EFTA dómstólinn mun svar þremur spurningum er varða dómsmál hollenska seðlabankans og breska innistæðutryggingarsjóðsins gegn íslenska innistæðutryggingarsjóðnum.
EFTA dómstólinn mun svara þremur spurningum er varða dómsmál hollenska seðlabankans og breska innistæðutryggingarsjóðsins gegn íslenska innistæðutryggingarsjóðnum. Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms þess efnis á þriðjudag. Ýtrustu kröfur Breta og Hollendinga kveða á um að íslenski tryggingarsjóðurinn greiði þeim um 1000 milljarða að meðtöldum vöxtum og kostnaði. Hollenski seðlabankinn og breski tryggingarsjóðurinn greiddu innistæðueigendum Icesave-reikninga Landsbankans í Hollandi og Bretlandi við fall Landsbankans. Hollendingar og Bretar vilja að íslenski innistæðutryggingarsjóðurinn greiði að fullu lágmarkstryggingu sem nemur allt að 20.887 evrum fyrir hvern innstæðueiganda, auk vaxta og kostnaðar. Svör EFTA dómstólsins verða meðal málsgagna þegar málið verður tekið efnislega fyrir hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.Bjóðast til að greiða það sem var í sjóðnum Íslenski tryggingarsjóðurinn hefur boðist til að greiða það fé sem var í sjóðnum þegar bankarnir féllu auk ávöxtunar á því fé en það nemur í dag tæplega 24 milljörðum króna. Síðan þá hafa safnast 14 milljarða í innstæðutryggingarsjóðinn og því er ljóst að það mun taka áratugi að greiða Bretum og Hollendingum til baka verði farið að ýtrustu kröfum þeirra. Íslenska ríkið verður ekki skuldbundið til að greiða upphæðina því hinn 28. janúar 2013 féll dómur EFTA dómstólsins þar sem kveðið var upp úr með það að íslenska ríkið beri ekki ábyrgð á greiðslum íslenska tryggingarsjóðsins vegna Icesave innstæðna í Bretlandi og Hollandi.Spurningarnar snúa að málsvörn íslenska tryggingasjóðsins Spurningar sem EFTA dómstólinn mun svara snúast að mestu um hvort málsvörn íslenska tryggingarsjóðsins standist ákvæði EES samningsins og tilskip Evrópuþingsins- og ráðsins um innistæðutryggingakerfi. Því er spurt hvort heimilt sé að takmarka útgreiðslur við það sem var í sjóðnum þegar svokallað kerfishrun verður. Einnig er spurt hvort hvort heimilt sé, líkt og íslenski tryggingarsjóðurinn hefur gert, að stofna nýja deild sem í renna nýjar iðngreiðslur en þær séu ekki látnar mæta fyrir skuldbindingum. Spurningarnar þrjár sem EFTA dómstólinn mun svara eru eftirfarandi: 1. Samrýmist það ákvæðum EES-samningsins, einkum 1. mgr. 7. gr. tilskipunar 94/19/EB um innstæðutryggingar og tryggingakerfi, þegar um kerfishrun er að ræða, að skuldbindingar fyrir fram fjármagnaðs innlánatryggingakerfis takmarkist við eignir þess á þeim tíma sem innstæður verða ótiltæk innlán í skilningi 3. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar og eignirnar duga ekki til að bæta kröfu hvers innstæðueiganda að fjárhæð allt að 20.000 evrur? 2. Samrýmist það tilskipun 94/19/EB að í kjölfar kerfishruns setji samningsríki lög eða stjórnvaldsfyrirmæli sem heimili fyrir fram fjármögnuðu innlánakerfi að setja á stofn nýja deild eða reikning þar sem safnað sé iðgjöldum og ákveða að þau iðgjöld skuli renna í nýju deildina eða reikninginn í því skyni að byggja upp sjóð sem eingöngu sé ætlað að mæta mögulegum framtíðaráföllum og standi ekki til greiðslu eldri skuldbindinga? 3. Samrýmist það 11. gr. tilskipunar 94/19/EB að innlánatryggingakerfi samningsríkis fái frekari réttindi samkvæmt landsrétti en þann að við greiðslu úr sjóðnum yfirtaki það kröfu kröfuhafa á hendur hlutaðeigandi aðildarfyrirtæki eða þrotabúi sem svari til fjárhæðarinnar sem greidd er?
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira