Níu einstaklingar undir átján ára undirgengust ófrjósemisaðgerð Aðalsteinn Kjartansson skrifar 18. nóvember 2015 15:13 Ekki eru til upplýsingar um hversu margir fatlaðir hafa farið í slíkar aðgerðir. Vísir/Getty Images
Níu ófrjósemisaðgerðir voru framkvæmdar á börnum undir átján ára aldri á tímabilinu 1998-2014. Umsókn um ófrjósemisaðgerð fyrir þessa einstaklinga voru undirritaðar af lögráðamanni. Átta stúlkur undirgengust slíka aðgerð og einn strákur. Þetta kemur fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Páls Vals Björnssonar, þingmanns Bjartrar framtíðar, um ófrjósemisaðgerðir. Engin gögn liggja fyrir um aðgerðir sem gerðar hafa verið á fötluðum einstaklingum, eins og spurningin snerist um. Hins vegar eru samantekin gögn um einstaklinga sem undirgengist hafa ófrjósemisaðgerð með samþykki skipaðs lögráðamanns.62 umsóknir undirritaðar af lögráðamanni Í svarinu kemur einnig fram að 52 ófrjósemisaðgerðir voru gerðar á einstaklingum undir 25 ára aldri á tímabilinu 1987-2014; á 41 konu og 11 körlum. Oftast voru gerðar ein til þrjár aðgerðir á ári en flestar á árunum 2001 og 2002, þegar sex og átta aðgerðir voru framkvæmdar. Þegar allur aldursskalinn er skoðaður bárust 62 umsóknir undirritaðar af lögráðamanni fyrir 42 konur og 20 karla á tímabilinu 1984-2014; engin fyrir þann tíma. Undirritun einstaklinganna sem undirgengust aðgerðirnar voru ekki á öllum umsóknum, þó flestum. Karlar komnir í meirihluta Í svarinu kemur einnig fram að heilt á litið, óháð aldri og hvort umsókn hafi verið undirrituð af lögráðamanni eða ekki, hefur mikil breyting orðið á því hvort konur eða karlar fari í ófrjósemisaðgerðir. Árið 1981 voru yfir 90 prósent þeirra sem fóru í slíkar aðgerðir konur en á síðasta ári voru karlmenn 79 prósent af þeim sem fóru í aðgerðir.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira