Tuttugu prósent fjölgun ferðamanna í apríl ingvar haraldsson skrifar 18. maí 2015 15:27 Ferðmönnum hér á landi fjölgar ár frá ári. vísir/pjetur
Tæplega 72 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í apríl síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 12.400 fleiri en í apríl á síðasta ári. Aukningin nemur 20,9 prósentum milli ára. Aukning hefur verið milli ára alla mánuði frá áramótum eða 34,5 prósent í janúar, 34,4 prósent í febrúar og 26,8 prósent í mars. Fjórði hver ferðamaður breskur Um þrír af hverjum fjórum ferðamönnum í apríl árið 2015 voru af tíu þjóðernum. Bretar voru fjölmennastir eða 26,4 prósent af heildarfjölda en næstir komu Bandaríkjamenn eða 15,2 prósent af heildarfjölda. Þar á eftir fylgdu Norðmenn (6,9 prósent), Danir (6,0 prósent) og Þjóðverjar (5,2 prósent). Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bretum og Bandaríkjamönnum mest milli ára en 3.269 fleiri Bretar komu í apríl í ár en í sama mánuði í fyrra og 3.179 fleiri Bandaríkjamenn. Bretar og Bandaríkjamenn báru uppi ríflega helmings aukningu ferðamanna í apríl milli ára.Tvöfalt fleiri ferðamenn en fyrir fjórum árum Fjöldi ferðamanna í aprílmánuði hefur nærri fjórfaldast frá árinu 2002. Oftast hefur verið um aukningu að ræða milli ára en mest hefur hún þó verið síðustu fjögur árin. Þannig hefur fjöldi ferðamanna meira en tvöfaldast í aprílmánuði frá árinu 2011. Það sem af er ári hafa 288.700 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 64.200 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 28,6 prósent aukningu milli ára. Tæplega 36 þúsund Íslendingar fóru utan í apríl síðastliðnum eða álíka margir og í apríl 2014.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira