Úrræðaleysi eftir útskriftina Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 15. október 2015 07:00 Erla segir viðhorfsbreytingu nauðsynlega í íslensku geðheilbrigðiskerfi. Hún hefur áralanga reynslu af kerfinu en litla systir hennar hefur glímt við alvarlegt þunglyndi um árabil. vísir/vilhelm
Sífellt fleiri stíga fram undir merkjum #égerekkitabú á samfélagsmiðlum og lýsa glímu við geðraskanir og geðsjúkdóma. Á bak við hverja veika manneskju eru að jafnaði þrír til fimm nánir aðstandendur. Geðhjálp efndi í gær til málþings undir yfirskriftinni Öðruvísi líf þar sem aðstandendur lýstu sinni sýn. Erla Kristinsdóttir var á meðal þeirra sem stigu fram. Hún sagði frá upplifun sinni af því að eiga systur með þunglyndi. Hún var lögð í einelti og þá fór að bera á þunglyndi og sjálfskaðandi hegðun. „Hún átti ekki samleið með bekkjarfélögum sínum sem sumir lögðu hana í einelti. Það komu engir vinir heim að leika við litlu systur og í þau örfáu skipti sem það gerðist þá var tilgangurinn annar en að sýna vináttu og kærleika,“ segir Erla. Hún segir vanlíðan systur sinnar hafa verið slíka að hún vildi ekki lifa lengur og lýsir viðmótinu þegar leita þurfti læknis. „Það hefði verið svo miklu einfaldara hefði hún fengið krabbamein eða einhvern samfélagslega samþykktan sjúkdóm. Þá hefði hún fengið miklu meiri stuðning og við hennar nánustu aðstandendur líka.“ Systir Erlu var viðloðandi geðdeild í rúmt ár. Erla segir það hafa verið ákveðinn létti að vita af henni á öruggum stað. Þegar hún var loks útskrifuð tók úrræðaleysið við. „Litla systir útskrifaðist af geðdeild og var þá vísað frá sínum geðlækni. Að sögn mátti hann ekki sinna sjúklingum utan spítalans. Sálfræðiþjónustan fylgdi einnig spítalanum og var ekki lengur í boði eftir útskrift. Litla systir þurfti að flytja aftur til mömmu enda bæði orðin atvinnulaus og húsnæðislaus eftir ársdvöl á geðdeild.“ Þarna hafi baráttan við kerfið harðnað. Loks samþykkti heimilislæknir fjölskyldunnar að hitta systur Erlu á meðan leitað væri að sálfræðingi sem hefði umsjón með meðferðinni. Síðan eru liðin átta ár og systir Erlu er enn án geðlyfja og hefur ekki stigið fæti inn á geðdeild aftur. Eftir margra ára reynslu af íslensku geðheilbrigðiskerfi segir Erla þörf á viðhorfsbreytingu. „Geðlæknar verða að hugsa út fyrir lyfjaglasið og félagsþjónustan á að mæta geðfötluðum sem manneskjum, ekki sem aumingjum.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira