Finnst þeir læra fyrir kennara og foreldra Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 15. október 2015 12:00 Elísabet Jónsdóttir, kennari á unglingastiginu í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ, væntir þess að geta breytt viðhorfi nemenda til námsins með kennslu í markmiðasetningu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „
Það er oft eins og nemendum finnist þeir vera að læra fyrir kennarann eða mömmu og pabba. Þeir gera sér ekki grein fyrir því að þeir eru að þessu fyrir sig. Ég hef oft hugsað um hvernig hægt sé að breyta þessu viðhorfi þeirra.“ Þetta segir Elísabet Jónsdóttir, sem kennir íslensku og lífsleikni á unglingastiginu í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Þegar Elísabet fór á námskeið í markþjálfun kviknaði hjá henni hugmynd um að kenna markmiðasetningu á unglingastiginu. Hún sótti um styrk hjá Sprotasjóði til að búa til nýja valgrein og hefst kennslan eftir áramót. Nú þegar hafa tæplega 40 nemendur í 9. og 10. bekk skráð sig í námið. „Ég er búin að vera kennari í mörg ár og einnig deildarstjóri. Mér finnst nemendur ekki taka nægilega ábyrgð. Ég vænti þess að eftir nám í markmiðasetningu uppgötvi þeir að þeirra er ábyrgðin á náminu og að þeirra er valið út frá eigin styrkleika og áhugasviði. Áherslan verður á að kenna nemendum að setja sér markmið,“ segir Elísabet. Hún sér fyrir sér að markmiðasetning verði ekki bara valgrein í framtíðinni heldur sjálfstætt fag. Í Lágafellsskóla er lífsleikni sjálfstæð námsgrein en ekki hluti af samfélagsfræði, sem hún er samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Í lífsleikni kynnast nemendur alls kyns málefnum sem lúta að daglegu lífi, að því er Elísabet greinir frá. „Þeir fá fræðslu um mannréttindi, það er unnið með sjálfsöryggi og námstækni. Kynfræðsla, fjármálalæsi, forvarnir, jafnrétti, hugleiðsla og jóga er meðal þess sem þeir fræðast um auk þess sem við förum og heimsækjum framhaldsskóla og kynnum okkur nám í þeim.“ Elísabet er viss um að auk lífsleikni muni kennslan í markmiðasetningu búa nemendur vel undir lífið.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira