Eitur í þvagi frá myglusveppi í kornafurðum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 15. október 2015 12:00 Eitur í þvagi Norðmanna frá myglusveppi í kornafurðum er talið stafa af neyslu morgunkorns og brauðs. Á Ítalíu er samhengi milli neyslu pasta og eitursins í þvagi en í Bretlandi er eitrið í þvaginu rakið til kexáts. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Af 250 Norðmönnum sem þátt tóku í rannsókn norskra, breskra og ítalskra vísindamanna reyndust 247 vera með eitur frá myglusveppi í kornafurðum í þvagi. Aðeins þrír voru ekki með eitrið deoksynivalenol, DON, í þvaginu. Mesta magnið reyndist vera í þvagi barna en þau borða hlutfallslega meira af mat en fullorðnir miðað við líkamsþyngd. Í frétt á vef norska ríkisútvarpsins er vitnað í nefnd sérfræðinga um matvælaöryggi sem fyrir tveimur árum hafði áhyggjur vegna barna sem borða graut og brauð í miklu magni. Ekki er útilokað að langvarandi neysla eitursins geti verið skaðleg heilsunni. Matvælaöryggisstofnun Evrópusambandsins hyggst nú nota niðurstöður norsku rannsóknarinnar til að reyna að reikna út hversu mikið af fyrrgreindu eitri var í matnum sem þátttakendur í rannsókninni neyttu. Mögulega verður hægt að ráðleggja hversu mikils af eitrinu verður hægt að neyta án þess að það valdi skaða. Í frétt norska ríkisútvarpsins segir að niðurstöður franskrar rannsóknar hafi sýnt bólguviðbrögð í heila og öðrum líffærum músa sem gefið var á hverjum degi í einn mánuð jafn mikið af eitrinu DON og norskir táningar fá í sig. Enn sé aðeins um vísbendingar að ræða sem rannsaka þurfi nánar áður en hægt verður að segja til um áhrifin á heilsu manna.
Mest lesið Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Erlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews Erlent Opið í Bláfjöllum í dag Innlent Fleiri fréttir Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Sjá meira