Vilja úttekt á ofbeldi gegn öldruðum á Íslandi Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 28. nóvember 2015 18:30
Landssamband eldri borgara vill að gerð verði úttekt á ofbeldi gegn öldruðum á Íslandi. Þá vilja þau að skipaður verði sérstakur réttargæslumaður fyrir aldraða. Fjölmennt var á ráðstefnu sem haldin var í gær um ofbeldi gegn öldruðum. Þeir sem starfa með öldruðum hér á landi segja ofbeldi gegn þessum hópi vera staðreynd. Ofbeldið eigi sér stað bæði í heimahúsum og á stofnunum. Þá geti gerendurnir verið aðstandendur, starfsfólk á stofnunum, nágrannar og jafnvel aðrir vistmenn á stofnunum. Fram kom á ráðstefnunni að birtingarmyndir ofbeldisins geti verið mismunandi. Ofbeldið geti verið líkamlegt, andlegt, kynferðislegt og jafnvel um vanrækslu að ræða. Engar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi á því hversu umfangsmikið ofbeldið er. Erlendar rannsóknir sýna að allt að 10% aldraðra eru þolendur ofbeldis. Landssamband eldri borgara vill að slíkar rannsóknir verði gerðar á Íslandi. „Við viljum virkilega að það sé gerð könnun á þessu hér. Að það sé settur á fót einhver rannsóknarhópur sem að gerir úttekt á því hvernig staðan er hér á landi,“ segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir fyrrverandi formaður Landssambands eldri borgara. Hún segir hagsmunahópa aldraðra hafa fengið fyrirspurnir og símtöl vegna ofbeldismála. „Ég veit að til dæmis hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík, þar hafa þeir orðið varir við svona lagað,“ segir Jóna Valgerður. Hún segir þessi mál lítið hafa verið rædd og mikilvægt sé að umræðan fari fram. Þá þurfi að huga betur að réttindamálum aldraðra. „Það þarf líka að setja á fót einhvern réttargæslumann til dæmis, fyrir aldraða, rétt eins og er hjá fötluðum. Það er alveg nauðsynlegt að fara að koma á fót einhverju slíku embætti gagnvart öldruðum,“ segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.
Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Fleiri fréttir Komi ekki á óvart skapi ríkið aftur skaðabótaskyldu gagnvart Hvali hf. Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Sjá meira