Eldfjallarannsóknir á Íslandi nýtast öllum heiminum Heimir Már Pétursson skrifar 7. nóvember 2015 20:51
Ítalskir jarðvísindamenn binda vonir við að evrópskar eldfjallarannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi með tæplega 900 milljón króna styrk frá Evrópusambandinu undanfarin þrjú ár, nýtist til að hægt verði að spá fyrir um eldgos mun fyrr en nú er mögulegt. Flytja þarf hundruð þúsunda manna á brott frá Napoli gjósi sögufræg eldfjöll í nágrenni borgarinnar. Mauro Rosi jarðfræðingur og starfsmaður Alamannavarna héraðsins segir að FutureVolc verkefnið sem jarðvísindadeild Háskóla Íslands og Veðurstofa Íslands hafa leitt á undanförnum þremur árum í samvinnu við jarðvísindamenn í tíu ríkjum Evrópu, sé mjög mikilvægt í þróun líkana á hegðun eldfjalla sem geti nýst vísindamönnum við að spá fyrir um eldgos. En vísindamenn frá tíu löndum Evrópu kynntu framvindu FutureVolc verkefnisins á fundi í Hveragerði í gær. Rosi segir Ísland góða tilraunastöð vegna mikillar virkni eldfjalla hér. „Við þyrftum að geta flutt hundruð þúsunda manna frá Napoli áður en eldgos hæfist,“ segir Rosi. En borgin liggur utan í hlíðum Vesuvius. Í dag geta íslenskir jaðrvísindamenn varað við eldgosi allt frá hálftíma upp í nokkrar klukkustundir áður en það hefst. En það dugar ekki íbúum Napoli borgar sem þyrftu nokkra daga fyrirvara. Rosi segir því mjög mikilvægt að vísindamenn um allan heim, þar með á Íslandi, vinni saman að því að finna aðferðir til að spá fyrir um eldgos.Ef þú vissir á þessari stundu að eldgos hæfist eftir hálftíma, hvað tæki þá lanngan tíma að rýma Napoli? „Það væri algerlega ómögulegt á svo skömmum tíma. Það er ástæðan fyrir því að við þurfum að vita af eldgosi með góðum fyrirvara. Skipulag almannavarna miðar við að brottflutningur fólks hefjist um leið og viðvörun sem byggir á þekkingu berst,“ segir Rosi. Ef eldgos hæfist með skömmum fyrirvara við Napoli, sem vel gæti gerst, væri líf hundruð þúsunda manna í hættu. „Við getum vonandi unnið að þessum málum sameiginlega í framtíðinni með því að skiptast á upplýsingum og prófunum, meðal annars héðan frá Íslandi, sem geta átt við okkar eldfjöll. Vegna þess að eldgos eru mjög tilviljunarkennd þegar horft er til eins ríkis en þau eru mjög algeng á heimsvísu. Þannig að það er mjög mikilvægt að tengja saman alþjóðavísindasamfélagið í þessum efnum,“ segir Mauro Rosi.
Mest lesið Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Innlent Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Sjá meira