Tuttugu og einn bíll skemmdur í Skeifunni Nadine Guðrún Yaghi skrifar 22. október 2015 08:00 Skemmdu bílana eiga bæði viðskiptavinir fyrirtækjanna og starfsmenn. vísir/stefán „
Það voru brotnar rúður og gramsað í tuttugu og einum bíl og við erum auðvitað fælnir eftir svona,“ segir Kristmundur Þórisson, eigandi Almenna bílaverkstæðisins ehf., en í byrjun mánaðarins voru brotnar rúður í tuttugu og einum bíl á sameiginlegu bílastæði verkstæðisins og fleiri fyrirtækja í Skeifunni 5. Fyrst var lögreglu tilkynnt um að brotnar hefðu verið rúður í sex bílum á planinu, rótað í þeim og ýmsu smálegu stolið. Tveimur dögum síðar endurtók leikurinn sig nema þá höfðu rúður verið brotnar í fimmtán bílnum. Í bæði skiptin voru spellvirkin unnin að næturlagi.Þjófnaður er óverulegur og skemmdarfýsn virðist ráða för.vísir/stefánBílana eiga bæði viðskiptavinir fyrirtækjanna og starfsmenn. „Fólk er oft með fullt af dóti í bílunum sínum og í svona tilvikum er fólk ótryggt nema það sé með kaskótryggingu eða heimilistryggingu sem tekur til þessa,“ segir Kristmundur og bætir við að hann hafi áhyggjur af því að sökudólgarnir fari aftur á kreik. Magnús Helgi Jónsson, stöðvarstjóri Aðalskoðunar hf., var sá sem tilkynnti lögreglu um fyrra tilvikið. Hann segir að þeir sem hafi verið að verki hafi líklegast verið að leita að peningum. „Því þeir stálu ekki miklu úr þessum bílum og létu til dæmis útvarpstækin alveg vera,“ segir Magnús Helgi. „Eftir því sem ég best veit var engu stolið úr bílunum frá viðskiptavinum okkar en þetta eru hins vegar skemmdir. Eftir atvikið setjum við alla bíla inn á næturnar,“ segir Atli Vilhjálmsson, verkstjóri hjá Betri bílum ehf., en viðskiptavinir þeirra urðu einnig fyrir tjóni. Á fundi húsfélagsins í Skeifunni 5 hefur það verið rætt að bæta lýsingu á bílaplaninu og koma fyrir myndavélum. „Mér finnst líklegt að við látum verða af því og verður það til þess að auka fælingarmáttinn,“ segir Kristmundur en hann er formaður húsfélagsins. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Við erum því miður bara engu nær um það hverjir voru að verki,“ segir Benedikt Lund lögreglufulltrúi. „Því ver og miður eru þarna einhverjir einstaklingar sem mér sýnist hafa þann tilgang einan að eyðileggja. Það er ekki svo óalgengt.“
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira