„Ég trúi þessu alveg 100 prósent“ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 5. mars 2015 14:10
Júlíus Júlíusson segist sjálfur trúa á þær meðferðir sem hann hefur boðið upp á. Hann notar skífur, filmur og fleira óhefðbundið til að orkujafna líkamann. Fjallað var um Júlíus í Kastljósinu í vikunni þar sem Guðjón Sigurðsson, formaður MND-félagsins, hitti hann með falda myndavél.Tók blaðamann í heilunVísir hafði samband við Júlíus og fékk hann til að framkvæma stutta heilun á blaðamanni og útskýra hvernig hann telur meðferðina virka. Júlíus mætti ásamt eiginkonu sinni á skrifstofur 365 þar sem blaðamaður tók á móti honum ásamt myndatökumanni. Í spilaranum má sjá hvað fór fram á fundinum. „Ég ætla að gefa þér „balanseringu“ sem stuðlar að framleiðslu elektróna í líkamanum á þér sem er eins og að fá C-vítamín í líkamann,“ segir Júlíus áður en að meðferðin hefst. Í möppu sem hann hefur með sér má finna mismunandi samsetningar diska og filma sem eiga að hafa mismunandi áhrif. „Þegar að fólk keyra í gegnum þennan prótókól þá finna margir jákvæðar breytingar hjá sér,“ segir hann.Júlíus útbjó pendúlinn sjálfur.Vísir/SigurjónBjó sjálfur til pendúlinn Júlíus á pendúl sem hann notar til að mæla eða nema orku sem stafar frá hlutum. Hann úbjó sjálfur pendúlinn og hann er ekki hluti af diska og filmufræðunum. „Það er sem sagt up-spin orka sem er orka sem vinnur á móti okkur en ef að ég sé diskinn hérna undir - sem kallaður er biodiskur - þá snýr pendúllinn réttsælis, sem er semsagt down-spin orka sem vinnur með orkunni okkar,“ segir hann. Pendúllinn hefur vakið mikla athygli í umræðu síðustu daga um aðferðir Júlíusar. „Fyrir mér er hann sérstakur. Ég renndi hann einu sinni fyrir tuttugu og eitthvað árum síðan,“ segir Júlíus. Hann las í bók að gott væri að eiga viðarpendúl og útbjó í kjölfarið pendúl sem hann hefur átt í langan tíma. „Hann geymir enga orku í sér. Það er ekkert sem að hann sendir frá sér.“Er hobbý-heilari„Fyrir svona einu og hálfu ári síðan þá kynnist ég manni sem var búinn að vera með MS í 22 ár. Hann fór í eina svona orkujöfnun, eitt svona kerfi, og það gerði svo mikið fyrir hann að ég virkilega hafði þá áhuga á að rannsaka þetta betur og skoða þetta og kynna mér þetta,“ segir hann. „Ég las þetta vel og vandlega og er búinn að vera hobbý-heilari í langan tíma, í áratugi, og ég fór og kynnti mér þetta það vel að ég er hér með þetta hérna, þetta kerfi,“ segir Júlíus sem segir að maðurinn sem um ræðir, sem heitir Kerry, eigi skýrslur sem sýni fram á bata af MS. Júlíus segir að hann lofi aldrei neinu en að hann hafi séð ótrúlega hluti í tengslum við heilunina. „Það er ekkert í hendi,“ segir hann. „Það er undir hverjum og einum komið hvernig þetta virkar.“Milljón af eigin peningumJúlíus segist sjálfur vera búinn að eyða yfir milljón krónum í tengslum við heilunina. Þegar hann kom að hitta blaðamann hafði hann meðferðis tvær möppur, aðra með filmum og hina með mismunandi samsetningum, auk þess að hann var með þrjár málmplötur eða diska með sér. Fyrir þetta hefur hann þurft að borga. „Ef við förum að taka saman það sem ég hef verið að borga í allskonar svona er í kringum milljón,“ segir hann. Júlíus segist vera búinn að eyða meiru en hann hefur þénað á heiluninni. „Það kemur líka fyrir að ég tek eitthvað fyrir þetta, ef ég þekki fólkið ekki,“ segir hann en Júlíus segist venjulega rukka ekki.Nokkrar gerðir eru til af diskum.Vísir/SigurjónTrúir Júlíus sjálfur að þetta virki? „Já, 100 prósent, annars væri ég ekki í þessu,“ segir hann og ítrekar: „Ég trúi þessu alveg 100 prósent“ Hann segist nota aðferðina fyrir fjölskylduna sína. „Já fyrir mig og fólk í kringum mig,“ segir hann. „Ég lofa engu, ég bara trúi, líka af reynslunni sem ég hef séð, og það er nóg fyrir mig.“ Minnkar óhollustuna í mat Eitt af því sem Júlíus trúir að diskarnir geti gert er að minnka kaloríur í matvælum. „Nú sel ég það ekki dýrara en ég keypti það að hann segir að hann minnki kaloríustyrkinn í matvörunni um 75 prósent,“ segir hann og vísar í orð Dan Nelsson, upphafsmann heilunaraðferðarinnar sem hann notar. „Nú hef ég ekkert fyrir mér í því en þetta er það sem fræðimaðurinn segir.“ „Alltaf þegar það er kók á boðstólum heima, ég er mikið á móti því en börnin vilja það, þá set ég blockerinn undir bara til öryggis,“ segir Júlíus en ljóst er á samtalinu að Júlíus notar heilunina í daglegu lífi. Júlíus segist aldrei hafa efast um mátt heilunarinnar þó að honum hafi þótt hún yfirþyrmandi fyrst þegar hann kynntist henni. „Fyrir mér var þetta einhver ævintýraheimur því þó að ég sé inn á þessu sviði, nýjungagjarn og tilbúinn að prófa allskonar hluti þá var þetta fyrir mér alveg: „Vá þetta er space-að“,“ segir hann.Trúir á vestrænar lækningar Júlíus segist skilja fræðimenn sem segja að aðferðirnar séu bull en margir læknar og sérfræðingar hafa lýst því yfir að aðferðirnar séu tilgangslausar. „Ég skil það vel að þeir segja að þetta sé bull, ég skil það vel, af því að þetta er svið sem þeir hafa aldrei kynnst. Og ef að maður hefur aldrei kynnst neinu þá getur maður ekki lagt mat á það, að mínu mati,“ segir Júlíus sem er staðfastur í trú sinni á virkni heilunarinnar. „Læknar eru frábærir og ég hef lent í allskonar hnjaski og ég hef verið saumaður saman hér og þar og þetta er frábært system sem við höfum en einhvern veginn leita ég síðast til hans,“ segir Júlíus og nefnir dæmi af því þegar botnlanginn í honum sprakk en þá reyndi hann að lækna sig sjálfur en endaði á spítala þar sem honum var bjargað. „Ég þarf líka á læknum að halda.“
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira