Lebron og Rose báðir klárir fyrir kvöldið | NBA byrjar í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2015 09:00 LeBron James. Vísir/Getty
LeBron James og Derrick Rose verða báðir með liðum sínum í kvöld þegar NBA-deildin í körfubolta fer af stað með leik Chicago Bulls og Cleveland Cavaliers í United Center í Chicago. Þetta kemur fram á ESPN og fleiri bandarískum fréttamiðlum. LeBron James og Derrick Rose hafa báðir verið að glíma við meiðsli á undirbúningstímabilinu, James í baki en Rose á andliti. LeBron James og Derrick Rose hafa báðir verið kosnir bestu leikmenn deildarinnar, James reyndar mun oftar, en Rose hefur verið mjög mikið meiddur síðustu tvö tímabil. Derrick Rose er 27 ára gamall leikstjórnandi sem var kosinn bestur 2011. Hann spilaði 51 leik á síðustu leiktíð og var með 17,7 stig og 4,9 stoðsendingar að meðaltali í þeim. LeBron James er 30 ára framherji sem hefur fjórum sinnum verið kosinn bestur í NBA-deildinni (2009, 2010, 2012, 2013). Hann var með 25,3 stig, 7,4 stoðsendingar og 6,0 fráköst að meðaltali á síðasta tímabili. LeBron James fékk bólgueyðandi sprautu í bakið 13. október og hefur ekkert spilað með liðinu síðan. Hann æfði hinsvegar með Cleveland-liðinu á ný á sunnudaginn og lýsti því síðan yfir í gær að hann verði klár í leikinn í kvöld. James fékk samskonar bólgueyðandi sprautu í janúar og var þá ekkert með Cleveland Cavaliers í tvær vikur. Að þessu sinni var þó meira um fyrirbyggjandi aðgerð að ræða. Derrick Rose fékk vænt olnbogaskot á fyrstu æfingu Chicago Bulls á undirbúningstímabilinu þannig að vinstri augnbotninn brákaðist. Rose spilaði hinsvegar í tíu mínútur í síðasta undirbúningsleiks Bulls-liðsins og skoraði átta stig á þessum stutta tíma. Þetta verður annað tímabil LeBron James með Cleveland Cavaliers síðan að hann snéri aftur heim og flestir NBA-körfuboltaspekingar eru að spá liði hans meistaratitlinum.Derrick Rose og LeBron James.Vísir/Getty
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira