Ferðalangar á framlengdum vegabréfum ekki í hættu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 27. október 2015 14:07 Ferðalangar á framlengdum vegabréfum þurfa ekki að hafa áhyggjur því afgreiðsla vegabréfa tekur að mesta lagi tíu daga, um leið og sýslumannsembættin opna að nýju. vísir/stefán
Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir að ef kjarasamningar náist í vikunni verði því ekkert til fyrirstöðu að gefa út ný vegabréf áður en nýjar reglur alþjóðaflugmálastofnunar taka gildi í nóvember. Reglurnar kveða á um að framlengd vegabréf falli úr gildi hinn 24. nóvember og að eftir þann tíma teljist þau ekki lengur gild ferðaskilríki. „Við höfum hingað til haft heimild til að stimpla á útrunnin vegabréf, en það er ekki lengur hægt að reiða sig á þá. En ef verkfallið leysist í þessari viku þá er ekkert í hættu hvað varðar það að menn geti ekki fengið vegabréf fyrir 24.nóvember,“ segir Þórólfur.Sjá einnig: Framlengd vegabréf falla úr gildi í nóvember Þjóðskrá Íslands sendi frá sér tilkynningu í morgun þess efnis að eftir að reglurnar taka gildi verði ekki hægt að ábyrgjast hvernig litið verði á framlengd vegabréf við landamæraeftirlit erlendis. Sýslumanni verður þó enn heimilt að framlengja vegabréf, en það verður á ábyrgð hvers og eins að ferðast með slík vegabréf.Misvísandi ákvæði í reglugerðunum „Íslensk reglugerð um vegabréf heimilar enn þá að vegabréf séu framlengd. Í rauninni má segja að það séu misvísandi ákvæði íslensku reglugerðarinnar um vegabréf og þessum reglum alþjóðaflugmálastofnunarinnar,“ útskýrir Þórólfur. Aðspurður hvort ekki sæti furðu að reglur sem þessar séu settar með einungis mánaðarfyrirvara segir hann að því þurfi stjórnvöld að svara. „Þetta eru alþjóðlegar reglur, en það má kannski segja að stjórnvöld hafi ekki brugðist tímanlega við, alveg óháð þessu verkfalli sem er í gangi núna,“ segir hann. Tíu daga tekur að fá nýtt vegabréf en hægt er að óska eftir hraðafgreiðslu, sem þó kostar töluvert meira. Almenn afgreiðsla á vegabréfum fyrir 18-66 ára kostar 10.250 krónur og hraðafgreiðsla kostar 20.250 krónur.
Tengdar fréttir Framlengd vegabréf falla úr gildi í nóvember Vegabréf sem hafa verið framlengd teljast ekki gild ferðaskilríki frá og með 24.nóvember næstkomandi 27. október 2015 11:49 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira
Framlengd vegabréf falla úr gildi í nóvember Vegabréf sem hafa verið framlengd teljast ekki gild ferðaskilríki frá og með 24.nóvember næstkomandi 27. október 2015 11:49