Innlent

Bílastæðasjóður hafði 600 þúsund krónur af Sjálfstæðismönnum

Jakob Bjarnar skrifar
Meðan Sjálfstæðismenn hlustuðu á foringja sinn, Bjarna Benediktsson, voru stöðuverðir að gefa út sektarmiða á bíla þeirra.
Meðan Sjálfstæðismenn hlustuðu á foringja sinn, Bjarna Benediktsson, voru stöðuverðir að gefa út sektarmiða á bíla þeirra.
Um helgina, meðan Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fór fram, voru gefnir út í Laugardalnum 60 sektarmiðar vegna stöðubrota. Þetta kemur fram í svari Kolbrúnar Jónatansdóttur framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs.

Tuttugu stöðubrot voru skrifuð af lögreglu síðdegis á föstudag síðastliðinn í nágrenni Laugardalshallar, þar sem fundurinn var haldinn. Á laugardag gáfu stöðuverðir út 15 sektarmiða. „Og 25 stöðubrot voru skrifuð af stöðuvörðum mínum á sunnudag,“ segir Kolbrún.

Þann 1. ágúst voru stöðubrotsgjöld hækkuð og er sektin 10 þúsund krónur vegna stöðubrots til dæmis vegna lagningar bifreiðar á gangstétt, gangbraut, vegamótum, í stæði fyrir hópbifreiðar eða þar sem umferðarmerki gefur til kynna bann við lagningu/stöðvun bifreiðar. Þetta þýðir þá að Sjálfstæðismenn eru að borga samanlagt 600 þúsund krónur í stöðubrotasektir, nú eftir helgina.

Kolbrún hefur litla samúð með lögbrjótunum en sektargreiðslurnar renna í Bílastæðasjóð og svo er þeim varið í uppbyggingu bílastæðahúsa.
Fjöldi sekta við Laugardalinn er athyglisverður í ljósi þess að nú, í þessum mánuði, hafa aðeins 59 umferðarlagabrot verið kærð til embætt­is rík­is­lög­reglu­stjóra en meðaltal kær­anna í októ­ber árin 2010-2014 eru 1625 kær­ur. Mbl greinir frá þessu og samkvæmt heimildum þar á bæ eru lögreglumenn „hættir að sekta fyrir flest um­ferðarlaga­brot og er frum­kvæðis­vinna lít­il sem eng­in. Í sept­em­ber sl. voru kær­urn­ar 574 tals­ins en fyr­ir sept­em­ber árin 2010-2014 voru kær­urn­ar að meðaltali 1617 tals­ins.“

Þetta er liður í kjarabaráttu lögreglumanna en svo er að sjá að þeir hafi, þrátt fyrir það, haft sig í að grípa í sektarblokkina þegar Sjálfstæðismenn voru í Laugardalnum.

Kolbrún segir spurð að það hafi ekki verið svo að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafi gefið út sérstakar ordrur; að sekta nú Sjálfstæðismennina þeim til hrellingar og svo til bjargar slæmri rekstarstöðu Reykjavíkurborgar? „Nei, hann gefur engar ordrur. Hér gefur enginn neinar ordrur nema þá ég, þegar ég er að segja fólkinu að vinna vinnuna sína. Þetta rennur í Bílastæðasjóð og svo í uppbyggingu bílastæðahúsa þannig að við getum ekki einu sinni lagað stöðu borgarsjóðs.“

Ekki er á Kolbrúnu að heyra að hún hafi mikla samúð með lögbrjótum í Laugardalnum nú um helgina. „Þarna eru 1800 stæði. Það er mikið verið að leggja ólöglega þarna innfrá. En, það eru alltaf bara örfáir metrar í næsta bílastæði.“


Tengdar fréttir

Sigmar sendir bílastæðasjóði kaldar kveðjur

"Júlíana hafði sýnt af sér vítavert gáleysi og ekki haft fyrir því að láta organdi drenginn, með annars stigs bruna, hinkra í bílstólnum á meðan hún borgaði í mælinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×