Samningum lokið við rúman helming Óli Kr. Ármannsson skrifar 2. desember 2015 06:00 Frá undirritun samkomulags SALEK hópsins um bætt vinnubrögð gerð kjarasamninga í Iðnó í Reykjavík í lok október. Fréttablaðið/Pjetur
Samið hefur verið við 37 af 64 viðsemjendum Sambands íslenskra sveitarfélaga frá því að viðræður hófust eftir SALEK-samkomulagið í lok október. „Við erum bara að vinna í þessu á fullu,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundir voru hjá Ríkissáttasemjara í gær. „Þetta komst á skrið í byrjun nóvember,“ segir hún. Fyrsti samningurinn sem skrifað var undir var við Skólastjórafélag Íslands 4. nóvember. Hann var samþykktur 13. nóvember með 69 prósentum atkvæða. Þá segir Inga Rún að samið hafi verið við starfsmannafélög sveitarfélaganna „í einni kippu“. Þau eru 34. Auk þess hafi samningar náðst við leikskólakennara. Grunnurinn að samningum sem gerðir hafa verið er launastefnan í SALEK-samkomulaginu. Samband íslenskra sveitarfélaga er aðili að samkomulaginu. „Við gerðum þetta samkomulag að okkar launastefnu,“ segir Inga Rún. Verkalýðsfélag Akraness hefur höfðað mál fyrir félagsdómi á þeim forsendum að í SALEK-samkomulaginu sé vegið að samningsfrelsi einstakra stéttarfélaga. Félagið skrifi ekki undir samning við sveitarfélögin á forsendum SALEK.Inga Rún Ólafsdóttir sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélagaInga Rún segir samninganefnd sveitarfélaganna ekki hafa orðið vara við slík viðhorf hjá öðrum stéttarfélögum. „Menn hafa verið mjög samstilltir í að bæta vinnubrögð við gerð kjarasamninga og huga að efnahagslífinu,“ segir hún. Um leið segir Inga Rún ómögulegt að segja til um hvenær takist að ljúka samningum. „Við gefum vel í í desember og fram að jólum.“ Alltaf komi þó upp sértæk mál og ræða þurfi hluti og leysa. Fyrir utan félag skólastjórnenda sem þegar hefur samþykkt sinn samning stendur yfir kynning og kosning um samninga hjá öðrum. Rafrænni atkvæðagreiðslu Starfsgreinasambandsins um samninginn sem hófst í gær lýkur á miðnætti þriðjudaginn 8. desember og á niðurstaða að vera ljós daginn eftir. Þá er niðurstöðu að vænta í kosningu Eflingar um samninginn 11. þessa mánaðar.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira