Leikstjórnandinn Russel Westbrook fór meiddur af velli þegar Oklahoma City Thunder lagði Toronto Raptors í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum aðfaranótt laugardagsins. Skoðun sýnir að Westbrook missir bara af einum leik.
Westbrook fór í segulómun í gær og í ljós kom að hægra hnéið sem skorið hefur verið upp í þrígang er í lagi.
Westbrook fór síðast í uppskurð milli jóla og nýárs og hefur leikið takmarkaðar mínútur síðan hann snéri aftur í febrúar og því var hið versta óttast þegar Kyle Lowry lenti óvart á Westbrook í fyrri nótt.
„Ég er sársaukalaus,“ sagði Westbrook strax eftir leikinn. „Það þarf að skoða þetta, svo sjáum við til.“
Westbrook hefur leikið í 37 leikjum á tímabilinu en hann mun missa af öðrum af tveimur næstu leikjum Thunder en liðið mætir Denver Nuggets á mánudagskvöld og Dallas Mavericks á þriðjudaginn.
Hnéð á Westbrook í lagi
Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar

Mest lesið



Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool
Enski boltinn


„Gæðin í liðinu munu alltaf skora mörk“
Íslenski boltinn




