Erlendar viðskiptafréttir á Vísi 2014 Samúel Karl Ólason skrifar 18. desember 2014 13:51 Viðskiptafréttir Vísis komu víða við 2014. Vísir
Farið var víða í fréttum úr erlendu viðskiptalífi á árinu. Fréttir sem snúa að tækni og internetinu virðast hafa farið sérstaklega vel í lesendur Vísis. Hér að neðan má sjá tíu erlendar viðskiptafréttir Vísis á árinu sem vöktu mikla athygliHerbalife sætir rannsókn FBI Bandaríska alríkislögreglan rannsakaði heilsurisann Herbalife vegna dreifingakerfis fyrirtækisins. Vogunarsjóðurinn William Ackman hefur kallað kerfið hreint og beint píramídasvindl.Youtube-stjarna með rúman milljarð á ári Svíinn Felix Kjellberg, sem einnig gengur undir nafninu PewDiePie, er stærsta Youtube stjarna heimsins og tekjur hans eru eftir því. Hann tekur upp myndbönd af sjálfum sér að spila ýmsa vinsæla en stundum óþekkta tölvuleiki.Einn stærsti galli sem fundist hefur á internetinuHearbleed gallinn skók internetið í vor, en hann varð til þess að uppfæra þurfti netþjóna í hraði um heim allan. Gallinn hafði verið til staðar í rúm tvö ár án þess að einhver yrði hans var.Borgari í svörtu brauði með svörtum ostiBurger King í Japan bauð viðskiptavinum sínum upp á sérhannaðan svartan ost ofan á borgara, svona til þess að vera í stíl við svarta brauðið og svörtu tómatsósuna í hinni svokölluðu Premium Kuro línu.iPhone 4 orðinn úrelturTæknirisinn Apple kynnti nýtt stýrikerfi fyrir snjallsíma til leiks í sumar, en ekki er hægt að nota það í iPhone 4 símum.Malaysia airlines átti í erfiðleikum í ár.Vísir/AFPÓdýrara að ferðast með einkaþotu en með lággjaldaflugfélögum Fyrirtækið PrivateFly byrjaði að bjóða upp á ódýrari fargjöld en flugfélagið EasyJet, sem er þekkt fyrir sitt lága verðlag, á ákveðnum flugleiðum. Þegar fyrirtækið fær spurnir af því að einkaþotur þurfi að ferðast tómar á milli borga (sem á ensku er kallað „empty leg“), býður það viðskiptavinum sínum að kaupa ódýrt far með vélinni.Enginn vill fljúga með malaysian AirlinesÁ aðeins 5 mánaða tímabili fórust tvær af þotum Malaysian Airlines og var fólk hrætt við að ferðast með vélum flugfélagsins. Ekki var það til að bæta viðvarandi hallarekstur flugfélagsins en taprekstur hefur verið á því síðustu 3 ár.Barbie-dúkka með „eðlilegar línur“ og appelsínuhúð Lammily-dúkkurnar eiga að sýna hvernig Barbie myndi líta út ef hún væri með „eðlilegar línur“. Líkamsbygging dúkunnar er byggð á tölfræði frá landlæknisembætti Bandaríkjanna.Færeyingar fríska upp á olíuborpall Einn stærsti olíuborpallur heims, risapallurinn West Hercules, var í viðamikilli klössun í Færeyjum í haust. Allt hótelrými var upptekið í Rúnavík og nágrannabæjum og þurfti að fá sérstakt hótelskip frá Noregi, Nordstjernen, til Skálafjarðar til að hýsa mannskapinn sem kom að verkefninu.iPhone 6 plus sagður beygjast auðveldlega Skömmu eftir að Apple setti iPhone 6 plus á markað hófu notendur að kvarta yfir því að síminn bognaði og þá jafnvel í buxnavösum. Þar að auki birtist á Youtube myndband þar sem sýnt var hve mikið afl þurfi til að beygja símann.
Mest lesið Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Viðskipti innlent Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Tölum um neytendamál! Samstarf Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira