Svartklæddur hippi 4. júlí 2014 14:30 Tinna Rún er mikið fyrir svart og velur sér oftast föt sem eru þröng að neðan og víð að ofan. Vísir/Valli
Tinna Rún Kristófersdóttir er 24 ára starfsmaður í Suzie Q og heldur úti tískublogginu Tinnarun.com. „Ég geng mest í svörtu og það er alveg uppáhalds “liturinn” minn. Sumir vinir mínir ganga svo langt að kalla mig gothara. Upp á móti gothinu kemur samt óstjórnleg ást mín á öllu með kögri, ætli ég sé ekki bara svart klæddur hippi? Ég reyni þó að versla mér flíkur í lit einstöku sinnum, en þá eru það yfirleitt litir eins og armygrænn eða dökk blár. Ég vel oftast þröngt að neðan og vítt að ofan vegna þess mér finnst það henta mínu vaxtarlagi best. Það sumartrend sem ég gjörsamlega kolféll fyrir í ár eru sandalar í birckenstock-stílnum og luma ég á einu pari með þykkum botni. Þá hef ég notað óspart, bæði á táslunum eða í skemmtilegum sokkum undir.“„Þetta fallega hálsmen er frá Hildi Yeoman. Ég ætlaði að gefa systur minni gamla iPhone-inn minn fyrir stuttu síðan, hún tók það víst ekki í mál að fá hann gefins og kom færandi hendi með þessa gersemi.“„Þessi jakki er frá meistaranum Alexander Wang. Ég er svo ótrúlega hrifin af þessu sporty lúkki. Hann er léttur og þægilegur og passar við nánast hvað sem er. Systir mín fékk þennan frá herra Wang eftir myndatöku hjá honum og hugsaði strax til mín, hún er yndisleg.“„Þessi eru frá New Balance og voru hvorki meira né minna en fjórða parið mitt frá þeim. Þessir eru samt klárlega fallegastir af þeim sem ég á, svart, leður og sjúklega þægilegir, ég bið ekki um meira.“„Þennan keypti ég fyrir nokkrum árum í H&M. Í tvö ár hefur hann valdið mér hugarangri en ég hélt að ég hefði selt hann í Kolaportinu í fyrra. Nei, nei elsku kjóllinn birtist bara upp úr poka sem fannst uppi á háalofti. Ég var svo ótrúlega glöð að finna hann og er strax búin að ákveða hvenær ég ætla að klæðast honum.“„Klárlega uppáhaldsflíkin mín! Ég og kærastinn minn vorum að rölta Laugaveginn rétt fyrir jólin 2012 þegar ég rakst á þennan í Rokki og rósum (RIP). Ég vissi bara að ég yrði að eignast hann. En ég átti ekki peninga til að kaupa hann og allar jólagjafirnar svo að hann varð eftir í búðinni. Á aðfangadag birtist hann svo upp úr pakka frá kæró. Hann þurfti reyndar að fara krókaleiðir með að versla hann þar sem systir mín hafði keypt hann fyrir sjálfa sig en var svo yndisleg að leyfa honum að kaupa hann af henni.“„Þessar eru glænýjar í fataskápnum. Kærastinn minn kom með þessar heim úr vinnunni fyrr í vikunni. Þær eru frá Nudie og er nýtt snið frá þeim. Ég veit ekki hvort okkar sé ánægðara með þær, en kærastinn minn er algjör gallabuxnapervert og Nudie er eitt af hans uppáhaldsmerkjum. Þær eru samt klárlega strax komnar í uppáhald hjá mér líka.“
Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Fleiri fréttir Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ Sjá meira