Sammælast um friðaráætlun fyrir Úkraínu Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2014 16:46
Ríkisstjórnin í Úkraínu og aðskilnaðarsinnar hafa sammælst um friðaráætlun til að binda endi á átökin sem geisað hafa í austurhluta landsins síðustu mánuði. Áætlunin er í níu liðum og felst meðal annars í að koma upp þrjátíu kílómetra löngu hlutlausu svæði, banni við flugi herþotna yfir ákveðið landsvæði í austurhluta Úkraínu og bann við þjónustu erlendra málaliða. Ákveðið var að vinna að gerð samkomulagsins á fundi Petró Pórósjenkó Úkraínuforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta í hvítrússnesku höfuðborginni Minsk þann 5. september þar sem samið var um vopnahlé. Rúmlega þrjú þúsund manns hafa látið lífið í átökum milli stríðandi fylkinga í héruðunum Donetsk og Luhansk síðan í apríl. Vopnahléssamkomulagið hefur margoft verið brotið, en er þó enn í gildi. Úkraínustjórn hafa sakað Rússa um að afhenda aðskilnaðarsinnum á bandi Rússlandsstjórnar vopn og að hafa sent rússneska hermenn inn í héruðin Donetsk og Luhansk. Rússnesk stjórnvöld hafa hins vegar hafnað öllum slíkum ásökunum.Í frétt BBC kemur fram að samkomulagið náðist að loknum löngum og ströngum viðstæðum milli fulltrúa Úkraínustjórnar, Rússlandsstjórnar, aðskilnaðarsinna og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira