Rangfeðraður maður vill lífsýni úr látnum manni Bjarki Ármannsson skrifar 29. september 2014 20:21 Lífsýni úr ætluðum föður mannsins er varðveitt á Landspítala. Vísir/Vilhelm
Persónuvernd tók fyrir á fundi sínum í dag erindi manns sem óskaði eftir leyfi til að fá aðgang að lífsýni látins manns, sem hann telur að gæti hafa verið faðir sinn. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að manninum bæri frekar að leita úrskurðar dómstóla en dómstólum er lögum samkvæmt falið að heimila erfðarannsóknir þegar vafi leikur á um faðerni. Í erindi lögmanns til Persónuverndar kemur fram að umsækjandinn komst að því fyrir stuttu að hann er ranglega feðraður. Mannerfðafræðileg rannsókn unnin í Danmörku hafi komist að því að engar líkur séu á því að skráður faðir hans væri líffræðilegur faðir hans. Þá hafi móðir mannsins hafi tjáð honum að áður en hún hóf sambúð með skráðum föður mannsins, hafi hún átt í stuttu sambandi við annan mann. Sá er látinn en lífsýni úr honum er varðveitt á Lífsýnasafni rannsóknarstofu í meinafræði á Landspítala.Í úrskurði Persónuverndar segir að hægt sé að heimila notkun lífsýna í öðrum tilgangi en ætlað var þegar þau voru tekin, meðal annars til að komast að uppruna einstaklings. Þá segir í erindi lögmannsins að umsækjandinn hafi komist að því að ætlaður faðir hans hafi látist úr krabbameini og þannig séu heilsufarsleg rök fyrir því að fá úr því skorið hver líffræðilegur faðir umsækjandans er.
Mest lesið Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Parísarhjól sprettur upp við höfnina Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Fleiri fréttir „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Sjá meira