Framleitt í (ólöglegri landræningjabyggð) Ísrael Sema Erla Serdar og Yousef Ingi Tamimi skrifar 18. september 2014 15:53 Í dag býr meira en hálf milljón Ísraelsmanna á palestínskum svæðum sem heyra undir hernumið land, en það er land sem Ísraelar hafa stolið af Palestínumönnum og ísraelskir landnemar hafa ólöglega sest að á. Flestir búa þeir á Vesturbakkanum, eða um 300.000 þeirra, sem dreifast á fleiri en hundrað landnemabyggðir. Flestar þessar landnemabyggðir eru byggðar á svæði þar sem Ísraelsmenn hafa beitt hervaldi og ofbeldi til þess að gera landið upptækt. Í 49. grein Fjórða Genfarsáttmálans er skýrt tekið fram að bannað sé fyrir þegna hernámsveldis að setjast að á herteknum svæðum. Í 46. grein Haag sáttmálans er skýrt tekið fram að ólöglegt er að framkvæma eignaupptöku á landi og öðrum hlutum í einkaaeign á hernumdum svæðum. Í ályktun Sameinuðu þjóðanna nr. 465 er talað um að flutningur Ísraelsmanna á eigin þegnum til hernámsvæðanna sé alvarleg hrindrun í samningaviðræðum um frið og er krafist þess að Ísraelsmenn flytji til baka. Þrátt fyrir það flytjast Ísraelar ekki einungis búferlum á stolin landsvæði, heldur starfa stærstu og helstu fyrirtæki Ísraelsmanna á hernumdum svæðum og njóta þannig ákveðinna forréttinda á kostnað Palestínumanna. Sem dæmi má nefna ísraelska fyrirtækið SodaStream, sem flestir Íslendingar ættu að þekkja, en frá árinu 1996 hefur SodaStream verið með stærstu verksmiðjuna sína í Mishor Adomim landnemabyggðinni á Vesturbakkanum. SodaStream fékk ódýrt land í Mishor Adomim en fyrirtækið nýtur auk þess þeirra fríðinda að fá aðgang að vatni sem hefur verið stolið af Palestínumönnum, en vatn er ein mikilvægasta auðlindin á svæðinu og er af skornum skammti. Ísraelar hafa því ólöglega gert eignanám á vatnsauðlindum á hernumdum svæðum Palestínu, og njóta þess óhindrað á meðan vatn er í mörgum þorpum skammtað til Palestínumanna. Einnig njóta fyrirtæki eins og SodaStream forréttinda í formi skattaafslátta og annarra fríðinda sem að sjálfsögðu væru ekki til staðar, væri fyrirtækið staðsett annars staðar en á stolnu landi. Þannig hvetja yfirvöld í Ísrael til flutnings þegna og fyrirtækja á ólöglega hernumin svæði. Eyðilegging Ísraela á efnahag Palestínu hefur valdið því að margir Palestínumenn eru tilneyddir til að sjá fyrir sér með því að vinna í verksmiðjum Ísraela á Vesturbakkanum, en um 500 Palestínumenn vinna í verksmiðju SodaStream í Mishor Adomim. Atvinnuleysi á Vesturbakkanum er hátt og því sjá Ísraelarnir Palestínumenn sem ódýrt vinnuafl sem þeir komast upp með að borga mun minna en lágmarkslaun kveða á um og veita þeim ekki full atvinnuréttindi, á grundvelli þjóðernis þeirra. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að Palestínumennirnir vinna við mjög erfið og jafnvel hættuleg vinnuskilyrði, en mikið vantar upp á kröfur um umhverfis- og vinnuvernd séu uppfylltar. Eins og það sé ekki nóg að brjóta alþjóðalög og virða að vettugi samþykktir Sameinuðu þjóðanna, og að hagnast á landráni og hernámi Ísraela með fríðindum og forréttindum, þá misnotar fyrirtækið SodaStream sér bága stöðu Palestínumanna á Vesturbakkanum og niðurlægir þá með því að neyða þá til þess að vinna fyrir þá sem eru ábyrgir fyrir þjáningum þeirra, á landinu sem var stolið frá þeim, þar sem nýttar eru náttúruauðlindir sem líka hefur verið stolið af þeim og toppurinn er svo að borga þeim minna en lágmarkslaun og hirða ekki um að sjá til þess að vinnuumhverfi þeirra sé öruggt. Sniðganga er friðsamleg aðferð sem miðar bæði að því að tjá siðferðislega og pólitíska vanþóknun á viðvarandi aðgerðum einstaklinga eða stofnanna sem skaða aðra. Þessi aðferð er yfirleitt notuð þegar aðrar leiðir hafa verið fullreyndar, en þann 9. júlí árið 2005 kom ákall frá Palestínumönnum sjálfum þar sem skorað var á alþjóðasamfélagið að hefja víðtæka sniðgöngu á Ísrael, þar til að réttindi Palestínumanna verða virt að fullu í samræmi við alþjóðalög. Með því að versla SodaStream er verið að styðja landrán og aðskilnaðarstefnu Ísraelsmanna. Með því að selja SodaStream er verið að hagnast á landráni og aðskilnaðarstefnu Ísraela. Hreyfingin BDS Ísland – sniðganga fyrir Palestínu hefur því farið þess á leit við Byko ehf. og Elko ehf. að það hætti að selja SodaStream vörur. Þar sem engin viðbrögð hafa fengist frá fyrirtækjunum hefur hreyfingin sett af stað undirskriftasöfnun þar sem almenningur er hvattur til þess að senda stjórnendum fyrirtækjanna tölvupóst. Hægt er að skrifa undir og senda tölvupóst á síðunni www.snidgongumisrael.is Byko ehf. og Elko ehf. ættu að setja fordæmi fyrir önnur íslensk fyrirtæki og láta af öllum viðskiptum við ísraelsk fyrirtæki og hætta að selja SodaStream vörur og hverfa þannig frá stuðningi við lögbrot og mannréttindabrot Ísraelsmanna. Þannig geta fyrirtækin tekið ábyrga afstöðu og fetað í fótspor fjölmargra fyrirtækja, stofnana og einstaklinga um allan heim sem hafa ákveðið að sýna mannréttindabaráttu Palestínumanna stuðning með því að sniðganga ísraelska framleiðslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sema Erla Serdar Yousef Ingi Tamimi Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar