Lífið

Hefði átt að höfundarréttamerkja skeggið

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hér er plötuumslag Flowers með Sin Fang.
Hér er plötuumslag Flowers með Sin Fang.
„Ég held að þetta sé frekar tilviljun en ég hefði kannski átt að höfundarréttarmerkja þetta. Ég ætti kannski að hringja í lögfræðinga mína,“ segir tónlistarmaðurinn Sindri Már Sigfússon, betur þekktur sem Sin Fang, glaður í bragði.

Nýjasta trendið á internetinu er myndir af mönnum sem hafa skreytt skegg sitt með blómum. Sindri hins vegar var á undan öllum með þessa tískustefnu þar sem hann gaf út plötuna Flowers í febrúar í fyrra og á plötuumslaginu skartar hann blómaskeggi.

„Ég gerði umslagið með kærustu minni, Ingibjörgu Birgisdóttur, en hún hefur gert síðustu þrjú plötuumslög fyrir mig. Á öllum þremur umslögunum er ég með skegg, það fyrsta var úr pappírsræmum, annað var blúnduskegg og svo ákváðum við að loka þríleiknum með blómaskeggi því platan heitir Flowers,“ segir Sindri. Hann segist ekki ætla að fara með skegghugmyndina lengra.

Myndir af Instagram-síðunni emelielc.
„Nei, þetta var lokaskeggið. Það verða örugglega engin blóm á næsta umslagi fyrst þetta er orðið „mainstream“. Þetta eru gamlar fréttir,“ segir hann og hlær. 

Sindri er nú í stúdíói að taka upp fimm laga EP-plötu.

„Þetta er eiginlega rafplata og fæ ég gestasöngvara til að syngja með í hverju lagi. Þetta eru allt íslenskir snillingar á borð við Jónsa í Sigur Rós, Sóleyju og Sillu úr Múm. Platan kemur vonandi út í ár. Ég átti að fara í tónleikaferðalag í haust en ég er búinn að vera svo lengi með plötuna að það frestast örugglega fram á næsta ár,“ segir Sindri sem spilar þó eitthvað erlendis áður en ferðalagið hefst.

„Ég fer til Kanada í næsta mánuði og svo til Tyrklands. Svo spila ég í Japan snemma á næsta ári.“

Rakið til hippanna

Talið er líklegt að bloggarinn Pierre Thiot hafi komið að stað blómaskeggstrendinu á Instagram þegar hann byrjaði með verkefnið Will It Beard. Það felst í því að setja hvað sem er í skeggið, hvort sem það eru blóm eða Lego-kubbar, og athuga hvort það tollir. Blómaskeggstrendið er þó ekki nýtt af nálinni þar sem þessi iðja var vinsæl á hippatímabilinu á áttunda áratug síðustu aldar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.