Samfélagsleg ábyrgð og þjónandi forysta Steingerður Kristjánsdóttir skrifar 27. október 2014 11:16 Samfélagsleg ábyrgð, fyrirmyndir og þjónandi leiðtogar. Fer þetta þrennt saman? Þjónandi forysta er hugmyndafræði sem á rætur sínar að rekja til Roberts Greenleaf sem setti fyrst fram hugmyndir sínar í kringum 1970. Í þjónandi forystu er fyrst og fremst horft til þess að þjóna fyrst og leiða síðan. Í þjónandi forystu er horft til margra þátta sem hafa verið greindir í skrifum Greenleafs og má þar nefna rannsóknir á þjónandi forystu sem prófessor Dirk van Dierendoncks við Erarsmus háskólann í Hollandi, hefur stýrt undanfarin ár. Direndonck dregur fram þætti þjónandi forystu sem einkennast af því að bera hag heildarinnar og þeirra sem tilheyra henni fyrir brjósti. Afrakstur þjónandi forystu er einkum starfsandi sem byggir á valddreifingu, mannlegum samskiptum og árangri sem felst í uppbyggilegum samskiptum, starfsáængju, árangri í starfi og samfélagslegri ábyrgð. Oft er ég spurð hvort þjónandi forysta sé ekki einhverjar kerlingabækur. Hvort þetta sé ekki bara eitthvað fyrir ístöðulausa stjórnendur og undirlægjur? Svarið er nei. Þjónandi forysta er hugmyndafræði sem mörg stórfyrirtæki hafa tileinkað sér með það að markmiði að hámarka afköst og arð með gæði og starfsánægju í fyrirrúmi. Má þar nefna bandarísk fyrirtæki á borð við South West Arlines, Starbucks, TDIintustries og Zappo svo eitthvað sé nefnt. Íslenskum fyrirtækjum sem tileinka sér þjónandi forystu fer einnig mjög fjölgandi. Og hvað með það? Rannsóknarskýrsla Alþingis á bankahruninu leiddi meðal annars í ljós að nauðsynlegt er að taka upp nýja áhersluþætti í stjórnun þessa lands, fyrirtækja og stofnana. Eftir hrunið hefur komið í ljós að fólkið í landinu ber þverrandi traust til stjórnmálamanna, opinberra fyrirtækja og valdamikilla einstaklinga í þjóðfélaginu. Er kannski kominn tími til að staldra við og skoða hvernig hægt sé að snúa bökum saman og vörn í sókn. Hildur Eir Bolladóttir sóknarprestur á Akureyri lýsir þessu á eftirfarandi hátt í bloggfærslu sinni um helgina: „Auðvitað þarf hver maður og þar með hvert samfélag að gera fortíð sína upp til að geta haldið áfram og þess vegna er gott að t.d. bankahrunið hafi verið rannsakað og um það fjallað á opinberum vettvangi ekki síst til þess að læra af því og fá það staðfest að leikreglur aðdragandans séu ekki til eftirbreytni. Það sem er hins vegar áhyggjuefni er að gremjan sem skiljanlega ríkti í aðdraganda og eftirmála hrunsins virðist hafa fest rætur í þjóðarsálinni. Gleraugu gremjunnar eru að verða sameiginleg fjarsýnisgleraugu þjóðarinnar sem við fáum stundum lánuð frá næsta manni til að rýna í aðstæður hverju sinni“ Gremjan sem Hildur talar um er vantraustið, vonbrigðin og vanmátturinn. Og hvað gerum við þá? Í þjónandi forystu er gengið út frá nokkrum mikilvægum þáttum sem gætu nýst okkur sem þjóð og ráðamönnum í viðleitni til að finna betri samhljóm. Þessir þættir sem ég vil draga fram hér eru: Efling, sem felur í sér ð hlusta á fólk af alúð. Auðmýkt og hógværð sem felur meðal annars í sér að sjá eigin afrek í hæfileika í réttu ljósi og halda sig við ákveðnar siðferðisreglur. Trúverðugleiki, sem felur í sér meðal annars að fyrirgefa þrátt fyrir misgerðir, skoðanamun og afstöðu annarra og geta lært af mistökum og gagnrýni. Gagnkvæm viðurkenning, taka fólki á þeirra forsendum þar sem rúm er fyrir mistök og lærdómsferli. Vilji til að bera ábyrgð á stofnun og heild og ekki síst gagnvart samfélaginu. Vera öðrum fyrirmynd. Samfélagsleg ábyrgð, ábyrgð gagnvart samfélaginu, tryggð og heiðarleiki. Skýr stefna, geta framkvæmt það sem þarf óháð viðhorfum annarra, búa svo um að fólk hafi sveigjanleika til að blómstra og nýta hæfileika sína í leik og starfi. Hvers vegna? Rannsóknir á þjónandi forystu undanfarin ár hafa sýnt svo ekki verður um villst að þjónandi forysta skilar aukinni starfsánægju, minni kulnun í starfi og framúrskarandi árangri. Þjónandi forysta eykur traust, skapar arð, eflir fólk til góðra verka og styrkir félagsauð. Þjónandi forysta er hugmyndafræði sem á erindi við mig og þig og alla sem koma að því að skapa samfélag sem byggir á ábyrgð, samkennd, góðum fyrirmyndum fyrir komandi kynslóðir – og alla hina! Gúgglaðu það! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Nokkrar góðar ástæður til að svindla á örorkukerfinu Eiður Welding Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Láglaunaþrælar, Samsæriskenning Guðmunda G. G. Skoðun Endurvekjum skikkjuna strax! Samúel Karl Ólason Skoðun Röng ákvörðun ráðherra Henry Alexander Henrysson Skoðun Hvað kostaði Krýsuvík? Davíð Arnar Stefánsson Skoðun Vika einmanaleikans Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir Skoðun Þau sem hunsa helförina Birgir Rúnar Davíðsson Skoðun Hvalirnir, hafið og við Edda Elísabet Magnúsdóttir Skoðun Íslenska ríkið braut á börnum en axlar enga ábyrgð Freyr Rögnvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Láglaunaþrælar, Samsæriskenning Guðmunda G. G. skrifar Skoðun Húmor í kennslu: Við hlustum, skiljum og munum betur Sveinn Waage skrifar Skoðun Vika einmanaleikans Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir skrifar Skoðun Vald og þátttaka eða valdtaka? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Röng ákvörðun ráðherra Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Hvalirnir, hafið og við Edda Elísabet Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenska ríkið braut á börnum en axlar enga ábyrgð Freyr Rögnvaldsson skrifar Skoðun Á að hundsa öll viðvörunarljós? Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostaði Krýsuvík? Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Endurvekjum skikkjuna strax! Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Allt það helsta með einum smelli Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Nokkrar góðar ástæður til að svindla á örorkukerfinu Eiður Welding skrifar Skoðun Orkuskipti í forgang Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir skrifar Skoðun Ancelotti, Real Madrid og árangur liðsins – út frá sálfræðilegum pælingum Andri Hrafn Sigurðsson skrifar Skoðun Takkaborð tilfinninga minna Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Kyrrstöðuverðbólga Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Bókaútgáfa, íslenskukennsla, þýðingar og máltilfinning Höskuldur Þráinsson skrifar Skoðun Mikilvægi dýranna: Þau hafa sitt vit Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Nauðungarstjórnun í nánum samböndum Ásgeir Þór Ásgeirsson skrifar Skoðun Ákall eftir náttúrufræðikennurum Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar Skoðun Minni atvinnuþátttaka og fjölgun starfa stórauka íbúðaþörf Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Jónsósómi II – engin skuldsetning vegna 984 m.kr. hafnarframkvæmda Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Framtíð stjórnmálanna – val kjósenda Magnea Marínósdóttir skrifar Skoðun Enn um vanda drengja Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Séreign er ekki það sama og séreign Björn Berg Gunnarsson skrifar Skoðun Heppni að ekkert fordæmi var til staðar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Í skugga sílóa og sandryks Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Fyrsta borgaraþing Reykjavíkur Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Upplifun mín á því að taka þátt í Gefum íslensku séns Brynjar Björnsson skrifar Skoðun Við lok grunnskólans Atli Björnsson skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Ancelotti, Real Madrid og árangur liðsins – út frá sálfræðilegum pælingum Andri Hrafn Sigurðsson skrifar
Skoðun Jónsósómi II – engin skuldsetning vegna 984 m.kr. hafnarframkvæmda Kristinn H. Gunnarsson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun